Reykjavík fyrir allar fjölskyldur

Ellen Calmon fjallar um hvað Samfylkingin ætlar að gera fyrir fjölskyldurnar í Reykjavík eftir komandi kosningar.

Auglýsing

Fjöl­skyldu­gerðir eru margs­konar og má þar meðal ann­ars nefna kjarna­fjöl­skyld­ur, ein­stæða for­eldra, stjúp­fjöl­skyldur eða fóst­ur­fjöl­skyld­ur. Að til­heyra fjöl­skyldu getur þýtt að þú hafir fjöl­breyti­legar skyldur en sumir eru svo heppnir að eiga börn og aðrir eiga ömmur og afa eða aldr­aða for­eldra. Stundum eru nán­ustu vinir einnig ígildi fjöl­skyldu. Við fögnum marg­breyti­legum fjöl­skyldu­gerðum í borg­ar­sam­fé­lagi nútím­ans.

Kerfi sem léttir undir

Við getum gefið okkur það að öll viljum við fjöl­skyldum okkar og vinum vel en í hröðu sam­fé­lag nútím­ans, vinnu­á­lags og áreitis er bakið ekki alltaf nógu breitt til að sinna öllu sem við myndum helst vilja gera. Því verðum við einnig að geta treyst á opin­bert kerfi og þær lög­form­legu skyldur sem kerf­inu ber að sinna. Kerfi sem grípur okkur þegar við þurfum á að halda, kerfi sem léttir undir með fjöl­skyld­unni og jafn­vel styður við okkur til að geta sinnt þessum ólíku störfum og skyldum sem við höfum öll, mis­miklar og mis­þungar eftir ald­urs­skeið­um.

Aukum stuðn­ing­inn

Við í Sam­fylk­ing­unni viljum auka enn frekar stuðn­ing við fjöl­skyldur og sér­stak­lega fjöl­skyldur í vanda þannig að við komum til móts við fólkið í borg­inni á öllum ald­urs­skeið­um. Það yrði gert meðal ann­ars með því bjóða upp á fjöl­skyldu­með­ferðir og börnum upp á sál­fræði­þjón­ust­u. Þá þykir okkur mik­il­vægt að efla ­stuðn­ing við börn í náms­erf­ið­leikum ásamt því að efla stuðn­ing við börn með rask­anir eða fatl­anir og fjöl­skyldur þeirra. Þar ætlum við að bjóða upp á þjón­ustu þver­fag­legra teyma og stuðn­ings­að­ila. ­Með því móti eiga börn að geta not­ið ­styrk­leika sinna í skóla, frí­stunda- eða tóm­stunda­starfi og fjöl­skyld­urnar fá stuðn­ing til að auka líkur á að svo verði.

Auglýsing

Menn­ing­ar- og heilsu­kort

Reykja­vík er ald­ur­svæn borg og hefur Sam­fylk­ingin unnið ötul­lega að mál­efnum aldr­aðra í sam­vinnu við öldr­un­ar­ráð. Þar leggjum við til að borg­ar­búar fái boð, þegar þeir hafa náð 70 ára aldri, um heilsu­efl­andi heim­sókn þar sem menn­ing­ar- og heilsu­kort borg­ar­innar er kynnt ásamt því starfi sem er í boði fyrir eldri borg­ara í hverf­inu þeirra. Við leggjum einnig til að allir íbúar 70 ára og eldri fái heim­sókn frá starfs­fólki félags­þjón­ust­unnar þar sem farið er yfir örygg­is­þætti heim­il­is­ins með til­liti til for­varna.  

Þá ætlum við einnig að koma á fót álíka korti fyrir fatlað fólk í Reykja­vík, sem veitir gjald­frjálsan aðgang að bóka­söfnum og öðrum söfnum á vegum borg­ar­inn­ar, sem og í sund­laug­ar. Fatlað fólk mun einnig fá boð um heilsu­efl­andi heim­sókn þar sem kortið er kynnt og farið er yfir hvað er í boði í nærum­hverf­inu sem teng­ist kort­inu. Með þessum kynn­ingum og heim­sóknum þar sem boðið er upp á leið­bein­ingar og aðstoð erum við mögu­lega að létta á álag­inu hjá fjöl­skyldum og aðstand­end­um.

Aðgengi­legri þjón­usta

Þjón­usta og sjálfs­af­greiðsla á vegum borg­ar­innar á að verða aðgengi­leg öllum á net­inu þegar unnt er og þá eiga borg­ar­búar að geta leitað til þjón­ustu­mið­stöðva eða þjón­ustu­vers borg­ar­innar til að fá aðstoð eða leið­bein­ingar vegna sjálfs­af­greiðslu. Við stefnum á að bæta aðgengi að öllu hús­næði þar sem þjón­usta Reykja­vík­ur­borg­ar.

Vinna gegn fátækt

Við ætlum að vinna gegn fátækt í borg­inni en Sam­fylk­ingin mun ekki leggja til skil­yrta fjár­hags­að­stoð. Fjár­hags­að­stoð til fram­færslu er neyð­ar­að­stoð þar sem við leggjum áherslu á að fólki sé mætt með vin­semd og virð­ingu. Þá skal stuðn­ing­ur­inn til þeirra sem fá fjár­hags­að­stoð mið­aður að vald­efl­ingu ein­stak­lings­ins og fjöl­skyld­unn­ar. ­Stuðn­ingur við sál­fé­lags­lega þætti er mik­il­vægur og við munum leggja áherslu á stuðn­ing til að kom­ast út úr erf­iðum aðstæð­um.

Við viljum að borg­ar­kerf­ið – hvort sem um er að ræða þjón­ustu, skipu­lag eða sam­göngur – sé gert til að mæta þörfum fólks­ins í borg­inni og að fjöl­skyldur finni til þess að hægt sé að leita eftir stuðn­ingi og aðstoð hjá Reykja­vík­ur­borg við þau marg­vís­legu verk­efni og skyldur sem mæta þeim á ólíkum ald­urs­skeiðum lífs­ins.

Áfram Reykja­vík fyrir allar fjöl­skyld­ur!

Ellen Calmon skipar 10. sætið á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík til borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar