Rafbílar og efnahagslegur stöðugleiki

Sigurður Gísli Karlsson segja það gott fyrir þjóð­ar­búið að „eyða“ í raf­magns­bíla við inn­kaup þegar vel gengur og spara í inn­kaupum og elds­neyti þegar ekki gengur eins vel.

Auglýsing

Í þess­ari grein er sett fram sú kenn­ing að raf­bílar geti aukið efna­hags­legan stöð­ug­leika á Íslandi. Margt hefur verið rætt og ritað um raf­bíla og hag­kvæmni þeirra við íslenskar aðstæð­ur. Fylgj­endur raf­bíla­væð­ingar benda gjarnan á að raf­bílar not­ist við inn­lenda orku sem er umhverf­is­vænni heldur en jarð­efna­elds­neyti hefð­bund­inna bíla en and­stæð­ingar raf­bíls­ins benda m.a. tekju­missi rík­is­sjóðs vegna nið­ur­fell­ingar á tollum og tap­aðra skatta á elds­neyti. Í skýrslu hag­fræði­stof­unnar frá 2016 var því spáð að raf­bílar yrðu samt sem áður þjóð­hags­lega hag­kvæm­ari kostur innan fárra ára. Sú spá byggði á ýmsum for­send­um, m.a. að með­al­tals­hækkun á elds­neyt­is­verði yrði um 5%. Á síð­ast­liðnum tveimur árum hefur elds­neyt­is­verð hins vegar hækkað um u.þ.b. 50% (í inn­kaupum til lands­ins) og því er ekki ólík­legt að þessi spá um þjóð­hags­lega hag­kvæmni raf­bíla hafi nú þegar ræst.

Það er óum­deilt að rík­is­sjóður verður af miklum tekjum ef stór hluti nýrra bíla eru toll­frjálsir raf­bíl­ar. Hins vegar ber minna á því í umræð­unni að það skiptir tals­verðu máli hvernig þjóð­fé­lags­að­stæður eru þegar mesti tekju­miss­ir­inn á sér stað. Eins og við er að búast kaupa mun fleiri nýjan bíl í góð­æri heldur en í nið­ur­sveiflu.

Rekstur ökutækja á föstu verðlagi Heimild: Graf er gert með gögnum frá Hagstofu Íslands.

Tekju­missir rík­is­ins vegna toll­frjálsra raf­bíla er því mun meiri þegar þjóð­ar­bú­inu gengur vel og rík­is­sjóður er betur í stakk búinn til að mæta slíkum tekju­missi. Engu að síður fer stærri hluti sölu­verðs nýs bíls úr landi þar sem raf­bílar eru enn sem komið er dýr­ari í fram­leiðslu en sam­bæri­legir hefð­bundnir bíl­ar. En þessi tíma­setn­ing er hjálp­leg fyrir atvinnu­lífið í land­inu, þetta aukna útflæði gjald­eyris úr þjóð­ar­bú­inu á sér stað á góð­ær­is­tíma, þegar gengið styrk­ist yfir­leitt (mynd XX) og það mun því auka stöð­ug­leika krón­unn­ar, þ.e. draga úr styrk­ingu hennar á upp­gangs­tím­um. Þegar (hin óum­flýj­an­lega) nið­ur­sveifla kem­ur, dregur svo snögg­lega úr þessu útflæði gjald­eyris þegar fólk heldur að sér höndum í bíla­kaupum og veik­ing krón­unnar verður minni í nið­ur­sveifl­unni. En þar með er ekki öll sagan sögð: Í nið­ur­sveiflum hefur rekstr­ar­kostn­aður öku­tækja ekki lækkað svo nokkru nemi í eins og inn­flutn­ingur öku­tækja hafa gert.

Fylgni landsframleiðslu og bílainnflutnings Heimild: Graf er gert með gögnum frá Hagstofu Íslands.

Auglýsing

Stór hluti þessa „fasta“ rekstr­ar­kostn­aðar er erlent jarð­efna­elds­neyti og inn­fluttir vara­hlut­ir. Með auk­inni raf­bíla­væð­ingu lækkar þessi rekstr­ar­kostn­aður og umtals­verður gjald­eyrir spar­ast. Á manna­máli má taka þetta saman og segja að það sé gott fyrir þjóð­ar­búið að „eyða“ í raf­magns­bíla við inn­kaup þegar vel gengur og spara í inn­kaupum og elds­neyti þegar ekki gengur eins vel. Þess vegna vil ég hvetja stjórn­völd til þess að taka af allan vafa um að raf­bílar og aðrir bílar sem ganga fyrir inn­lendu elds­neyti verði áfram und­an­þegnir sköttum eins og verið hefur og hag­stæð­ast er fyrir þjóð­ar­búið til lengri tíma lit­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar