Rauða spjaldið!

Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs Starfsgreinafélags, segir kröfugerð verkalýðsfélaganna jafngilda áminningu í knattspyrnuleik. Stjórnvöld hafi verið áminnt og ef ekki verði brugðist við – verði rauða spjaldið dregið upp.

Auglýsing

Nú er það verka­lýðs­hreyf­ing­unni að kenna að gengið er að falla og nýir bílar selj­ast ekki. Senni­lega verður verka­lýðs­hreyf­ing­unni næst kennt um hlýnun jarðar og slæmt gengi í Eurovisí­on.

Þetta er kafli eitt í áróð­urs­stríði sem mun standa næstu mán­uði.

Bar­áttan er ekki síst háð í fjöl­miðlum og sam­fé­lags­miðlum og nú er verið að draga fram vopn­in. Við erum þegar búin að fá að heyra um tvö­földun launa­kostn­að­ar, atvinnu­leysi og sam­drátt og verð­bólgu og síð­ustu daga hefur svo verið bætt í og nú er það veik­ing krón­unnar og bíla­sala.

Auglýsing

Það getur vel verið að kröfu­gerð verka­lýðs­fé­lag­anna sé frekar „bólg­in“ og mögu­lega getur lært og gáfað fólk fært rök fyrir því að atvinnu­lífið standi ekki undir launa­kröfum og rík­is­sjóður ekki undir kröfum gagn­vart stjórn­völd­um.

Kröfur verka­lýðs­fé­lag­anna eru merki um það að ára­löngu sam­ráði við stjórn­völd er lok­ið. Síð­ustu ár hefur þetta sam­ráð reynst nán­ast alger­lega verð­laust fyrir launa­fólk og stjórn­mála­flokk­arnir hafa farið sínu fram án þess að horfa til áherslna launa­fólks og hags­muna. Kröf­urnar eru líka merki þess að launa­fólk ætlar ekki að ábyrgj­ast stöð­ug­leika og skyn­semi í sam­fé­lag­inu eitt síns liðs og með yfir­stétt­ina á frí­miða.

Sam­ráðið hefur verið í orði en ekki á borði – við höfum alltaf þurft að kaupa dýru verði aðgerðir sem stjórn­mála­menn­irnir lof­uðu sjálfir fyrir kosn­ing­ar. Við höfum líka keypt dýru verði svikna vöru – fyr­ir­heit um aðgerðir sem ekki hefur verið staðið við. Við höfum líka keypt fyr­ir­heit launa­greið­enda dýru verði - fyr­ir­heit sem farið hafa í bók­anir í kjara­samn­ingum og aldrei spönn lengra.

Á sama tíma eykst mis­rétti.

Gengið er að falla af því að eigna­fólk er að flytja pen­inga til útlanda – ekki af því að launa­fólk er að heimta réttan skerf af kök­unni. Fyrir nokkru þegar and­rúms­loftið titr­aði umhverfis WOW lét gengi krón­unnar lítið eitt eftir og þá stóð ekki á Seðla­banka Íslands að grípa inn og beita sér til að styrkja stöðu krón­unn­ar. En þegar launa­þræl­arnir leggja fram sínar kröfur og fjár­magns­eig­endur byrja að flýja land í skelf­ingu – heyr­ist hvorki hósti né stuna úr Svart­hol­inu á Arn­ar­hóli.

Það er ekki hlut­verk almenns launa­fólks að tryggja stöð­ug­leika – til þess er fólk á laun­um. Hlut­verk bíl­stjóra er að koma far­þegum eða farmi skamm­laust á milli staða. Hlut­verk fisk­verka­fólks er að vinna afla sem á land berst. Hlut­verk rík­is­stjórnar og seðla­banka­stjóra er að tryggja stöð­ug­leika og verð­bólgu­mark­mið. Nú þegar launa­fólk leggur fram sínar kröfur – situr þetta lið á kant­inum og vælir um áhrif á stöð­ug­leika í stað þess að bretta um ermar og gera nauð­syn­legar ráð­staf­an­ir.

Kröfu­gerð verka­lýðs­fé­lag­anna er jafn­gilt áminn­ingu í knatt­spyrnu­leik. Stjórn­völd hafa verið áminnt og ef ekki verður brugð­ist við – verður rauða spjaldið dregið upp.

Það má vera að ein­hverjum finn­ist kröf­urnar ósvífnar en það er af því að ófyr­ir­leitni valds­manna og auð­valds­ins hefur verið mikil og staðið lengi. Ef ein­hver kemst upp með að stela af manni lágri upp­hæð mán­að­ar­lega í mörg ár – er þá ósvífni að krefj­ast end­ur­greiðslu? Á sá sem stolið er af, að bjóða afslátt og afborg­un­ar­kjör af því þýfið er svo mik­ið?

Kröfum verka­lýðs­fé­lag­anna verður ekki mætt með neinum smá­skammta­lækn­ingum – heldur algerri vink­il­beygju í sam­fé­lags­mál­um. Sam­fé­lagið á að vera fyrir okkur öll – ekki bara auð­vald­ið.

Höf­undur er fram­kvæmda­stjóri AFLs Starfs­greina­fé­lags.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar