Betri þjónusta - betra samfélag

Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar um tillögur Garðarbæjarlistans um að bæta þjónustu við íbúa.

Auglýsing

Betri þjón­usta við íbúa er eitt af stóru mál­unum sem Garða­bæj­ar­list­inn hefur sett í for­gang í sinni stefnu og áherslu í bæj­ar­stjórn við upp­haf þessa kjör­tíma­bils. Nú fer fyrri umræða um fjár­hags­á­ætl­un­ar­gerð þessa kjör­tíma­bils að hefjast, en hingað til hafa full­trúar Garða­bæj­ar­list­ans ekki átt full­trúa við und­ir­bún­ing­inn. Því hafa bæj­ar­full­trúar Garða­bæj­ar­list­ans unnið margar til­lögur sem lagðar hafa verið fyrir bæj­ar­stjórn.

Áherslan hefur verið á betri þjón­ustu við íbúa og lýð­ræð­is­legri vinnu­brögð og sam­vinnu. Sumar til­lög­urnar hafa fengið ágætan hljóm­grunn en aðrar ekki.  Áhuga­vert verður að fylgja því eftir að málin rati inn í fjár­hags­á­ætl­un­ar­gerð­ina.  

Stytt­ing vinnu­vik­unnar var ein af til­lögum Garða­bæj­ar­list­ans sem því miður fékk ekki hljóm­grunn meiri­hlut­ans og var því felld. Stytt­ing vinnu­vik­unnar á ekki síður heima undir betri þjón­ustu, sem felur í sér aðgerð til stuðn­ings við bætt vinnu­um­hverfi og aukna starfs­á­nægju. En Garða­bæj­ar­list­inn lagði til að for­gangs­raðað yrði í þágu kvenna­stétta og haf­ist yrði handa við að rýna í tæki­færin sem stytt­ingu vinnu­vik­unnar fæli í sér á leik­skólum bæj­ar­ins til þess að gera enn betur í þjón­ustu og til að laða að starfs­fólk.

Auglýsing

Betri þjón­ustu fyrir börn og ung­menni

Á meðal til­lagna er mik­il­vægur stuðn­ingur við barna­fjöl­skyldur í formi systk­ina­af­slátt­ar, sem getur skipt sköpum fyrir þátt­töku barna og ung­menna í starfi sem hefur mikið for­varn­ar­legt gildi.

Við höfum hvatt bæj­ar­stjórn til að vera leið­andi í þjón­ustu við börn og ung­menni og styðja um leið við fjöl­skyldur og sam­fé­lagið allt. Ferða­þjón­usta fatl­aðra er til end­ur­skoð­unar og þar hvetjum við til þess að þjón­ustan verði færð nær not­end­um. Við viljum tryggja örugga og skjóta þjón­ustu, með auknum lífs­gæðum fyrir þá íbúa Garða­bæjar sem kom­ast ekki hjá því að nýta sér slíka þjón­ustu.

Fram­sækin stoð­þjón­usta - fram­sækið bæj­ar­fé­lag

Við end­ur­skoðun á umsóknum um sér­fræði­þjón­ustu höfum við hvatt til þess að horft verði til fram­sæk­inna lausna í stoð­þjón­ustu með því að nýta fjar­þjálfun, sem er ein­föld í fram­kvæmd en ekki síður hag­kvæm. Við höfum bent á mik­il­vægi þess að þau börn og ung­menni sem þurfa á tal­þjálfun að halda geti fengið greiða og góða þjón­ustu frá upp­hafi með því að inn­leiða fjar­þjálfun sem nú þegar hefur fest sig í sessi víða um land. Hingað til hefur verið skortur á þeirri þjón­ustu, sem getur haft nei­kvæð áhrif fyrir börn og ung­linga. Það skiptir máli að tryggja ein­falda, skjóta og árang­urs­ríka leið. Hug­myndir Garða­bæj­ar­list­ans miða allar að bættri þjón­ustu við fjöl­skyldur í Garðabæ þar sem nálægð við not­end­ur, stuttar boð­leiðir og öryggi er haft að leið­ar­ljósi.

Áfram betri Garða­bær fyrir alla íbúa!

Höf­undur er odd­viti Garða­bæj­ar­list­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar