Þetta hefði svo auðveldlega getað verið öfugt

Auglýsing
Þegar femínistar og aðrir hópar sem berj­ast fyrir jafn­rétti á Íslandi benda á að víða sé pottur brot­inn í íslensku sam­fé­lagi, þá eru and-­femínistar fljótir að benda á að konur og jað­ar­hópar á Íslandi hafi það nú bara alveg ágætt miðað við önnur lönd. Reglu­lega er bent á að Ísland hafi trónað á toppi jafn­rétt­is­skala World Economics Forum níu ár í röð og ár hvert er Íslandi fagnað fyrir upp­runa og áfram­hald­andi mót­mæli kvenna á Kvenna­frídeg­in­um. Bent er á konur hafi nú þegar greiðan aðgang að valda­stöð­um, og má þar dæmi nefna að for­sæt­is­ráð­herra er kona og sömu­leiðis biskup Íslands. 



Merkir stærð­fræð­ingar og aðrir sjálf­skip­aðir sér­fræð­ingar um launa­mun segja þetta vera allt saman hyster­ískan upp­spuna og það sé nú ekki verið að stjórna eftir réttu breyt­unum í rann­sóknum – karlar vinna ein­fald­lega bara meira og lengur en kon­ur. Það er ekki þeim að kenna að konur séu svona latar eða þurfi að sækja barnið á leik­skóla, kaupa í mat­inn og sjá um heim­il­ið.

En fyrir fólk sem er til­búið í að horfast í augu við stað­reyndir og hefur verið að fylgj­ast með umræð­unni í sam­fé­lag­inu und­an­farna daga, þá er aug­ljóst að for­dóm­ar, kven­fyr­ir­litn­ing og spill­ing hefur gegn­um­sýrt íslenskt sam­fé­lag. Konur eru í miklum minni­hluta þeirra sem gegna ábyrgðar og áhrifa stöðum í íslensku sam­fé­lagi og er það fyrst núna á und­an­förnum árum þar sem konur hafa fyrst í sögu Íslands brotið ákveðin gler­þök og kom­ist í stöður þar sem þær geta látið til sín taka. Slíkt er samt langt frá því að vera nóg, enda geta ekki einu sinni kosnir þing­menn Alþing­is, elstu og æðstu stofnun lands­ins, borið lág­marks­virð­ingu fyrir sam­starfs­konum sínum og láta út úr sér subbu­leg og ógeð­felld ummæli.

Auglýsing

Hegðun „hátt­virtra“ þing­manna létu út úr sér á almanna­færi minna meira á ung­linga á koju­fyll­eríi frekar en kosna full­trúa lýð­veld­is­ins. Afsak­anir sem bár­ust virt­ust flestar inni­stæðu­lausar og lítið annað en lélegt yfir­klór. Sjálf hef ég oft verið full, en aldrei hef ég kallað sam­starfs­fólk mitt kuntur á almanna­færi, hvað þá talað um að ríða þeim eða byrjað að ræða hvað feg­urð þeirra hafi nú fölnað und­an­farið ár.

Gunnar Bragi stóð sér­stak­lega í því að reyna að fjar­lægja sig aðstæðum og tal­aði oft eins og þetta væri nú bara leið­inda­mál sem hefði komið upp þrátt fyrir að hann væri bók­staf­lega ger­andi í þessu máli, á meðal Sig­mundur Davíð beindi sjónum sínum að meintum sam­sær­is­kenn­ingum um hler­un­ar­bún­að. En þetta er allt í lagi því vegna þess að hann Gunnar Bragi á vini sem eru hommar og meira að segja eina vin­konu sem „skipti um kyn“. Þá er hann nú aug­ljós­lega ekk­ert for­dóma­full­ur.

Eina mann­eskjan sem íhug­aði sína stöðu var vita­skuld eina konan á svæð­inu og meira að segja sagði ein kona sig úr sinni stöðu hjá Seðla­bank­anum vegna þessa máls. Eiga konur bara enda­laust að taka ábyrgð á mis­gjörðum karla?

En auð­vitað er það bara ein­skær til­viljun að talað var um þing­konur á þennan hátt og á ekk­ert með kyn þeirra að gera. Sjáum við ekki öll fyrir okkur Odd­nýju, Unni Brá, Silju Dögg, Lilju, Áslaugu Örnu, Ingu Snæ­land og Freyju Har­alds í anda að setja út á útlit karl­kyns þing­manna, tala um að ríða þeim, herma eftir sel­um, segj­andi að þeir séu svo miklar kuntur og tíkur sem leiða þær á asna­eyr­unum og neita að hlýða þeim? 

Þetta hefði svo auð­veld­lega getað verið öfugt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None