Jafnrétti til náms óháð rekstrarformi

Formaður samtaka sjálfstætt starfandi skóla segir að það sé grundvallaratriði að sjálfstæðir grunnskólar sitji við sama borð og aðrir skólar þegar kemur að úthlutun fjármagns.

Auglýsing

Nýtt frum­varp hefur verið lagt fram á Alþingi til breyt­inga á lögum um lág­marks fjár­fram­lag með hverjum nem­anda sem stundar nám í sjálf­stætt starf­andi grunn­skóla. Hverfa á frá lág­mark­s­við­mið­inu 70-75% fram­lagi af lands­með­al­tali til 85-90% fram­lags, sem er mikið fagn­að­ar­efni.

Það blasir við að 2/3 með­al­tals­fram­lags tryggir ekki frelsi allra til þess að velja skóla óháð rekstr­ar­formi. Þegar svo naumt er skammtað þurfa for­eldr­ar/­for­ráða­menn að brúa bilið og greiða skóla­gjöld til þess að tryggja rekstur við­kom­andi skóla. 

Slíkt er algjör­lega óvið­un­andi í landi þar sem kveðið er á um jafn­rétti til náms í lög­um.

Við hjá Sam­tökum sjálf­stæðra skóla höfum alla tíð eða frá stofnun sam­tak­anna árið 2005 lagt ríka áherslu á að fjöl­skyldum sé ekki mis­munað þegar kemur að vali um skóla fyrir börn og ung­menni og við höfum hvatt ráða­menn til þess að jafna tæki­færin og tryggja fjöl­breyti­leika í skóla­vali.

Sam­tök sjálf­stæðra skóla gleðj­ast því mjög yfir þeim tíð­indum að Við­reisn hafi nú tekið af skarið og fengið í lið með sér stjórn­mála­fólk úr ólíkum flokkum á Alþingi til að vinna að jafn­ari stöðu allra til að nýta sér ólík rekstr­ar­form í þeim sveit­ar­fé­lögum þar sem sjálf­stæðir skólar starfa. 

Auglýsing

Sjálf­stætt starf­andi skólar eru dýr­mætir fyrir menntaflór­una og hafa allir sem einn komið fram með nýjar leiðir og áherslur í námi til þess eins að gera betur fyrir börn og ung­menni. Sjálf­stæðir grunn­skólar spretta fram af hug­sjón fyrst og fremst og eiga að fá frelsi til að móta  menntun í þágu sam­fé­lags­ins alls. En ekki síður frelsi til þess að geta boðið heilli stétt kenn­ara upp á val­kost um vinnu­um­hverfi. Því þannig er það að sjálf­stætt starf­andi grunn­skólar skapa ann­ars konar starfs­um­hverfi heldur en ger­ist í skólum reknum af sveit­ar­fé­lög­um. Umhverfi þar sem stjórnun er bundin við hvern ein­staka skóla en er ekki hluti af stærra kerfi eins og heilu sveit­ar­fé­lagi sem fer með stýr­ingu sinna skóla. Það hefur áhrif og skiptir máli í stóra sam­heng­inu um fjöl­breytt rekstr­ar­form grunn­skóla.

Það er grund­vall­ar­at­riði að sjálf­stæðir grunn­skólar sitji við sama borð og aðrir skólar þegar kemur að úthlutun fjár­magns. Við hjá Sam­tökum sjálf­stæðra skóla hvetjum þing­heim allan til þess að leggj­ast á eitt og þoka stöðu sjálf­stætt starf­andi skóla til betri vegar og nær því jafn­rétti sem við hljótum að vilja að ríki í mennta­kerfi okk­ar. Þannig er betur hlúð að þeirri nýsköp­un, frum­kvæði og frum­kvöð­uls­starfi sem felst í sjálf­stætt starf­andi grunn­skól­um.

Höf­undur er for­maður sam­taka sjálf­stætt starf­andi skóla.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar