Þungunarrof

Auglýsing

Loks­ins, loks­ins kom fram frum­varp um breyt­ingu á úreltum lög­um, lög sem í dag heita lög um ráð­gjöf og fræðslu varð­andi kyn­líf og barn­eignir og um fóst­ur­eyð­ingar og ófrjó­sem­is­að­gerð­ir, lög frá árinu 1975 sem eins og nafnið gefur til kynna blandar saman alls­konar ólíkum hlut­um. Sam­fé­lagið hefur breyst en það að konur verði ófrískar og hvernig mun seint breytast, það segir sig sjálft. En þegar texti gild­andi laga er skoð­aður ætti öllum að vera ljóst að þörf er á breyt­ing­um. Þótt ekki sé nema fyrir það hvað lögin í dag fjalla um ólíka þætti í sama laga­bálki og það hversu sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur kvenna er, sam­kvæmt laga­text­an­um, lít­ill. Í raun er það þannig að ferlið við fóst­ur­eyð­ingar í dag er ekki í fullu sam­ræmi við laga­text­ann, sem er auð­vitað ótækt. Þá þarf að taka ákvörðun um hvort breyta þurfi fram­kvæmd­inni þannig að hún sé í fullu sam­ræmi við lög­in, eða hvort lögin séu úrelt og þurfi að breyta í auknu sam­ræmi við fram­kvæmd.

Fæð­ing­ar­læknar hafa kallað eftir breyt­ingu á lög­unum sem þeir hafa talið barn síns tíma. Í mars 2016 skip­aði þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra Krist­ján Þór Júl­í­us­son nefnd sem ætlað var að vinna að heild­ar­end­ur­skoðun lag­anna. Í nóv­em­ber sama ár skil­aði nefndin skýrslu til ráð­herra og lagði til að sett yrðu þrenn ný lög í stað eldri laga, þ.e. lög um fræðslu og ráð­gjöf varð­andi kyn­heil­brigði, lög um þung­un­ar­rof og lög um ófrjó­sem­is­að­gerð­ir. Einnig lagði nefndin til að heim­ilt yrði að rjúfa þungun að beiðni konu fram að lokum 22. viku þung­unar ef engar lækn­is­fræði­legar ástæður mæltu gegn því. Voru nið­ur­stöður nefnd­ar­innar lagðar til grund­vallar því frum­varpi sem nú liggur fyrir þing­inu.

Hvar á ábyrgðin að liggja?

Mest er deilt um þá laga­breyt­ingu í frum­varp­inu að hægt verði að fram­kvæma þung­un­ar­rof að beiðni konu fram að lokum 22. viku án þess að fyrir því séu ástæður sem skrif­aðar eru inn í frum­varp­ið. Í dag er það þannig í lög­unum að það þurfa að vera til­greindar ástæður fyrir því að leyfa skuli fóst­ur­eyð­ingu. Ástæð­urnar skulu vera lækn­is­fræði­leg­ar, félags­legar eða að þung­unun sé til­komin í kjöl­far nauðg­un­ar. Sam­kvæmt lög­unum þurfa tveir sér­fræð­ingar að skrifa upp á beiðn­ina og þannig í raun sam­þykkja að aðstæður kon­unnar séu í sam­ræmi við það sem lögin heim­ila. Við mat á félags­legum ástæðum skal tekið mið af því hvort konan hafi alið mörg börn með stuttu milli­bili og skammt sé frá síð­asta barns­burði, hvort konan búi við bágar heim­il­is­að­stæður vegna ómegðar eða alvar­legs heilsu­leysis ann­arra á heim­il­inu, konan geti ekki vegna æsku eða þroska­leysis ann­ast barn á full­nægj­andi hátt eða um sé að ræða ástæður sem eru fylli­lega sam­bæri­legar fram­an­greindum ástæð­um.

Auglýsing

Það eru alltaf ástæður fyrir því að kona velur þung­un­ar­rof. Hverjar þær eru geta verið mjög mis­mun­andi og ég leyfi mér að efast um að núver­andi laga­texti nái utan um það. Ég á bágt með að sjá að lög­gjaf­inn geti með ein­hverju móti skrifað inn í lög hvaða ástæður heim­ila þung­un­ar­rof og þar af leið­andi hvaða ástæður leyfa það ekki. Af þeim sökum er ég á þeirri skoðun að ábyrgðin á ákvörðun um þung­un­ar­rof þurfi og eigi að liggja hjá kon­unni sjálfri. Það er það sem núver­andi frum­varp gerir ráð fyrir en að sjálf­sögðu verður áfram tryggt að konan fái stuðn­ing og fræðslu við hæfi, bæði fyrir og eftir þung­un­ar­rof.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None