Þegar tilgangurinn á að helga meðalið

Kári Stefánsson svarar grein Ingvars Helga Árnasonar þar sem hann fjallar um kolabrennslu á Bakka.

Auglýsing

Í grein sinni í Kjarn­anum segir Ingvar Helgi Árna­son að honum finn­ist hallað á fræði­grein­ina efna­fræði þegar kola­brennsla á Bakka er gagn­rýnd og vísar til greinar eftir mig í Frétta­blað­inu sem dæmi.

Ég held að þetta hljóti að vera mis­skiln­ingur hjá Ingvari eða leik­ara­skapur fram­inn í þeim til­gangi einum saman að rétt­læta þá ákvörðun að fórna umhverf­is­sjón­ar­miðum fyrir kís­il. Sú ákvörðun byggð­ist á engan máta á lög­málum efna­fræð­innar heldur stjórn­mál­anna. Að baki ákvörð­un­inni var ein­lægur áhugi Stein­gríms Joð og ann­arra stjórn­mála­manna til þess að stuðla að atvinnu­upp­bygg­ingu í kjör­dæmi hans.

Það er lofs­vert í sjálfu sér en er ekki í mínum huga rétt­læt­ing á hverju sem er. Mér finnst það til dæmis ekki rétt­læt­ing á því að brenna 66 þús­und tonnum af kolum og 33 þús­und tonnum af timbri ár hvert og stuðla á þann hátt að þeirri mengun sem er að kynda undir hnett­inum okkar hjart­kæra og þess alls eina fyrir afkom­endur okkur að búa á.

Auglýsing

Ingvar bendir að vísu rétti­lega á að það megi búa til ýmis konar flotta og umhverf­is­væna hluti úr kís­ilnum en það er eng­inn samn­ingur milli lands­manna og kís­il­verk­smiðj­unar á Bakka um að kís­ill­inn þaðan verði not­aður í þannig, hvorki aðeins né ein­göngu. Síðan er það líka áleitin spurn­ing hvers vegna við Íslend­ingar ættum að skíta út landið okkar svo aðrar þjóðir geti fram­leitt hrein­ar, fal­legar vör­ur.

Ákvörð­unin að leyfa brennslu á kolum og timbri á Bakka hefur ekk­ert með efna­fræði að gera heldur verð­mæta­mat stjórn­mála­manns sem stofn­aði stjórn­mála­flokk sem heitir Vinstri græn­ir. Hans mat var að það fælist nægi­leg rétt­læt­ing á brennsl­unni að hún skap­aði störf í kjör­dæm­inu hans, mitt mat er að það geri það ekki; ein­göngu verð­mæta­mat, engin efna­fræði. Það er síðan önnur saga að þetta verð­mæta­mat Stein­gríms Joð bendir til þess að græni hlut­inn í nafn­inu á stjórn­mála­flokknum hans hafi ein­ungis átt við lit­inn á bind­inu hans.

Og svo er það efna­fræðin sem er stór­kost­leg og hefur lagt meira að mörkum til nútím­ans en nokkur önnur grein vís­inda en á sér hrá­slaga­lega sögu. Það var til dæmis í byrjun síð­ustu aldar að fyr­ir­tæki á sviði efna­fræð­innar fengu skatta­af­slátt í borg­inni Basel í Sviss ef þau hleyptu eitr­uðum efna­úr­gangi út í ánna Rín þannig að hann skol­að­ist beint inn í Þýska­land. 

Íslensk stjórn­völd undir for­ystu þáver­andi fjár­mála­ráð­herra Stein­gríms Joð slógu borg­ar­yf­ir­völdum í Basel við og borg­uðu fyrir und­ir­bún­ing og alls konar aðstöðu fyrir kís­il­verk­smiðju á Bakka. Það er ekki nóg með að það sé spúð yfir okkur eldi og brenni­steini, við borg­uðum fyrir hann. Og nú vilja þeir að við borgum meira.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar