Sala áfengis

Auglýsing

Það hvernig staðið skuli að sölu áfengis hefur lengi verið deilu­mál. Alloft hefur frum­varp um að gefa sölu áfengis frjálsa komið fram á þingi í örlítið mis­mun­andi stíl. Slíkt frum­varp hefur aldrei hlotið braut­ar­gengi og erfitt að sjá að það breyt­ist alveg á næst­unn­i. 



Sjálf hef ég ekki skiln­ing á því að einka­að­ilum sé ekki treyst fyrir að selja vín í flösku þar sem einka­að­ilum er treyst til að selja vín í glasi úti um allan bæ og stöðugt fer þeim fjölg­andi. Ýmsar vega­sjoppur og hverf­is­sjoppur hafa fengið vín­veit­ing­ar­leyfi, spila­salir eru margir með vín­veit­inga­leyfi. Sjálf myndi ég frekar viljað sjá sér­versl­anir með mat og drykk hafa leyfi til að selja áfengi en suma af þessum stöð­um. Áfengi er engin venju­leg neyslu­vara en það eru lyf, skot­vopn og flug­eldar ekki held­ur. 

Þrátt fyrir það treystum við einka­að­ilum fyrir sölu á slíkum vör­um. En hvað um það. Ef ekki er vilji til að breyta þessu þá finnst mér alla­vega ástæða til að rík­is­fyr­ir­tækið ÁTVR sé ekki ein­ráða um hvar þeir opna vín­búð. Þess vegna hef ég lagt fram frum­varp þess efnis að sveit­ar­fé­lögin hafi aðkomu að stað­ar­vali þegar verið er að opna nýjar áfeng­is­versl­an­ir. Áfeng­is- og tóbaks­verslun rík­is­ins, ÁTVR, hefur hingað til haft fullt frelsi til að stað­setja versl­anir sínar án þess að hafa þurft að hafa um það sam­ráð við hand­hafa skipu­lags­valds­ins, sjálf sveit­ar­fé­lög­in. Þekkt er sú stað­reynd að sveit­ar­fé­lögin hafi ekki alltaf verið sátt við stað­setn­ingu versl­ana ÁTVR og hafa jafn­vel talið stað­ar­valið vinna gegn mark­miðum þeirra í skipu­lags- og umhverf­is­mál­um. Sem dæmi má nefna að sveit­ar­fé­lagið Garða­bær hefur ítrekað kvartað yfir því að ÁTVR hafi ein­hliða lokað verslun sinni í miðbæ Garðabæjar og  svo nokkrum árum síðar opnað nýja verslun í Kaup­túni en ekki í miðbæ Garða­bæjar þrátt fyrir skýrar óskir sveit­ar­fé­lags­ins þar um. 

Auglýsing

Í umsögn umhverf­is- og skipu­lags­ráðs Reykja­vík­ur­borgar frá því í mars 2017, þegar fjallað var um laga­frum­varp um smá­sölu áfengis (106. mál á 146. lög­gjaf­ar­þing­i), kom fram að stefna borg­ar­yf­ir­valda væri að efla verslun og þjón­ustu „innan íbúð­ar­hverfa þannig að flestir geti nýtt sér þjón­ustu innan síns hverfis og dregið verði úr vega­lengd­um“. Sam­dóma álit ráðs­ins var að breytt fyr­ir­komu­lag á verslun með áfengi gæti ýtt undir fjölgun versl­ana og mark­viss­ari stað­setn­ingu þeirra í kjörnum hverf­anna. Umhverf­is- og skipu­lags­svið borg­ar­innar hvatti til þess að laga­grund­völlur þess að sveit­ar­fé­lögin hefðu aðkomu að stað­ar­vali og afgreiðslu­tíma vín­búða yrði treyst­ur, hvort sem það væri gert með afnámi einka­leyfis eða breyttri stefnu ÁTVR. 

Með frum­varp­inu verður sam­ráð við sveit­ar­fé­lög lög­bund­ið. Þannig treysti ég því að sem flest sjón­ar­mið komi fram þegar stað­setn­ing er val­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None