Um almannavarnir og öryggi

Ari Trausti Guðmundsson hvetur til endurskoðunar á viðbragðsgetu orkufyrirtækja, síma- og netfyrirtækja og stofnana/fyrirtækja sem varða mestu um samgöngur í landinu - og aðgerða í kjölfarið.

Auglýsing

Sum okkar muna, á árum Kalda stríðs­ins, Almanna­varnir rík­is­ins sem nefnd er gekkst fyrir við­vör­un­arflautu­próf­unum tvisvar til þrisvar á ári og safn­aði teppum og varn­ar­grím­um, svo eitt­hvað sé nefnt. Meg­in­fram­farir í skipu­lagi almanna­varna, sem tóku brátt að snú­ast fyrst og fremst um nátt­úru­vá, fólust í Sam­hæf­ing­ar­stöð­inni (2003) í Reykja­vík og sér­lögum um almanna­varnir 2008. Umræður um skipu­rit/­stjórnun leiddu til þess að stjórn­unará­byrgð lög­reglu við aðgerðir í hér­aði krist­all­að­ist í emb­ætti rík­is­lög­reg­u­stjóra (í umboði ráð­herra), með rík­is­lög­reglu­stjóra sem meg­in­stjórn­anda en hann hverfur senn sem emb­ætti. Nú er unnt að meta reynsl­una af fram­kvæmd og gæðum lag­anna að rúmum ára­tug liðn­um. 

Auglýsing
Þessi stutta grein er að upp­stöðu minn­is­blað til rík­is­stjórn­ar­innar frá 21. októ­ber sl. og end­ur­skoðað 7. des­em­ber sl.

Breyttar aðstæður og for­sendur

Ég hef fylgst sem jarð­vís­inda­maður og fjalla­mað­ur, afskipta­samur af umhverf­is­mál­um, með þróun Almanna­varna í yfir 40 ár. Sam­hæf­ing, m.a. í björg­un­ar- og aðstoð­ar­störfum (og gott hlut­verk lög­reglu í hér­aði) hefur þró­ast all­langt í rétta átt, líkt og sam­starfið við sér­fræð­inga á mörgum svið­um. Fleira má auð­vitað nefna. Engu að síður blasir við að mörgum verk­efn­um, t.d. við­bragðs­á­ætl­un­um, áhættu­mati, efl­ingu við­bragðs­að­ila, þjálfun og menntun þeirra, jafn­vel hliðrun að nokkru leyti úr sjálf­boða­mennsku í launuð störf, hefur ekki verið sinnt nægi­lega. Það á meðal ann­ars við í ljósi þess að nátt­úrvá eykst vegna þró­unar veð­ur­fars. Hennar vegna kemur til álita og end­ur­skoð­unar allt kerfi síma- og tal­stöðv­ar­sam­bands, raf­orku­kerfið og tölvu­netið sem heild. Stór­viðri, snjó­flóð, skriðu­föll og sjáv­ar­flóð á land verða vænt­an­lega bæði öfl­ugri og algeng­ari en und­an­farna, marga ára­tugi. Einnig veður að taka til­lit til þess hlut­læga mats á hættu af öfl­ugum eld­gos­um, eld­gosum nærri byggð og stórum jarð­skjálft­um, í öllum til­vikum miðað við end­ur­komu­tíma, sem vís­indin leggja okkur til. Aðeins dæmin Öræfa­jök­ull, Katla, Bárð­ar­bunga, Reykja­nesskagi og Tjör­nes­brota­beltið á Norð­aust­ur­landi eru til marks um það.

End­ur­skoðun frá grunni

Aðlögun að veð­ur­fars­breyt­ing­um, afleið­ingum þeirra og snör við­brögð þegar á bjátar heyra að hluta undir Almanna­varn­ir. Inn í stóra rammann tengj­ast svo beinar rann­sóknir á nátt­úru­vá, vöktun hennar og myndun sjóða, bæði Ham­fara­sjóðs og Þjóð­ar­sjóðs. Þarna, alls stað­ar, eru brýn verk að vinna. Ég hvet til þess að unnið verði af meira afli við end­ur­skoðun á almanna­vörnum lands­ins en hingað til. Mark­miðið á að vera að auka öryggi okkar allra með því að tryggja enn betri sam­hæf­ingu, meira fé til þátta sem efla skil­virkni, þekk­ingu, for­varnir og áætl­an­ir. Mik­il­vægt er að Almanna­varnir verði sjálf­stæð stofnun og við­bragðs­að­il­ar, allt frá lög­reglu og Land­helg­is­gæslu til heil­brigð­is­kerf­is­ins og björg­un­ar­sveita, virki sem sam­hæfð ein­ing. Einnig er brýnt að haldið verði áfram að þróa og styrkja starfs­hætti og skipu­lag Sam­hæf­ing­ar­mið­stöðv­ar­innar og mið­stöðva á lands­byggð­inni. Loks verður að kanna vel og meta gagn­semi þess að færa almanna­varnir lands­ins undir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið. Þar fer árang­urs­rík sam­ræm­ing og sam­hæf­ing fram í takt við sumar áherslur og virkt eft­ir­lit Þjóðar­ör­ygg­is­ráðs og rík­is­stjórn­ar. Alþingi hefur auk þess ýmis verk að vinna þar til við­un­andi staða næst í almanna­varn­ar­mál­um. Lofts­lags­ráð og vís­inda­menn eru til ráð­gjaf­ar.

Ég hvet líka til end­ur­skoð­unar á við­bragðs­getu orku­fyr­ir­tækja, síma- og net­fyr­ir­tækja og stofn­ana/­fyr­ir­tækja sem varða mestu um sam­göngur í land­inu - og aðgerða í kjöl­far­ið.



Höf­undur er þing­maður Vinstri grænna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar