Yfirlýsing vegna yfirtöku Ísraels á Vesturbakkanum

Fjórir þingmenn í utanríkismálanefnd Alþingis hafa áhyggjur af áætlun nýrrar ríkisstjórnar Ísraels um innlimun á svæðum Palestínumanna og hvetja utanríkisráðherra og ríkisstjórn Íslands til að beita sér með skýrum hætti fyrir friðsælli lausn.

althingi222.jpg
Auglýsing

Við und­ir­rituð lýsum áhyggjum af áætlun nýrrar rík­is­stjórnar Ísra­els um inn­limun á svæðum Palest­ínu­manna og áhrifum þess á deilur og átök Ísra­ela og Palest­ínu­manna. 

Áætl­unin brýtur alþjóða­lög og gengur gegn alþjóð­legum sam­þykktum og álykt­unum Örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna um mál­efni Palest­ínu og Ísra­els. Hún gengur þvert á mark­mið um rétt­láta tveggja ríkja lausn, sem samið var um í Osló og Evr­ópa hefur beitt sér fyrir í ára­tugi, og setur full­komið bakslag í alla mögu­leika á frið­ar­við­ræð­um.

Fram­kvæmd áætl­unar rík­is­stjórnar Ísra­els mun skapa mikla spennu á svæð­inu, enda myndi hún skilja íbúa Palest­ínu eftir án vonar um full­mótað full­veldi og líf­væn­legt ríki. Sam­komu­lag rík­is­stjórnar Ísra­els­ríkis kveður á um að bygg­ingar nýrra land­nema­byggða geti haf­ist strax á næstu dögum og vik­um. Yfir­gnæf­andi líkur eru á að það muni end­an­lega gera út um horfur um frið milli Ísra­ela og Palest­ínu­manna með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ing­um. 

Auglýsing

Ísland á sér­stakt sam­band við Palest­ínu. Við vorum fyrsta Vest­ræna ríkið sem við­ur­kenndi sjálf­stæði og full­veldi Palest­ínu með sam­hljóða sam­þykkt Alþingis árið 2011 og erum aðilar að frí­versl­un­ar­samn­ingi við Palest­ínu í gegnum EFTA. Við höfum einnig sögu­leg tengsl við Ísra­els­ríki frá stofnun þess árið 1948. 

Und­ir­rituð hvetja utan­rík­is­ráð­herra og rík­is­stjórn Íslands til að beita sér með ákveðnum og skýrum hætti fyrir frið­sam­legri lausn á deilu Ísra­ela og Palest­ínu­manna og að koma því skýrt á fram­færi við ísra­elsk stjórn­völd að áform þeirra gagn­vart Palest­ínu séu óvið­un­and­i.  Ísland hefur alltaf stutt tveggja ríkja lausn­ina og ber ávallt að tala fyrir því að alþjóða­lög séu virt og að diplómat­ískum og frið­sam­legum leiðum sé beitt í deilum Ísra­ela og Palest­ínu­manna.  Það er sögu­leg nauð­syn nú sem aldrei fyrr. 

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, þing­maður og vara­for­maður utan­rík­is­mála­nefnd­ar. 

Logi Ein­ars­son, þing­maður í utan­rík­is­mála­nefnd og form. Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.

Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður í utan­rík­is­mála­nefnd.



Smári McCart­hy, þing­maður í utan­rík­is­mála­nefnd og form. þing­manna­nefndar EFTA og EES.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar