Eins og er flestum kunnugt um þá hefur verðlagning á uppsjávarafla ekki staðist samanburð þegar litið er til landanna í kringum okkur. Verðlagsstofa skiptaverðs ákvarðar síðan út frá meðalmarkaðsverði hvað fiskur til lóðrétt samþættaðra útgerða selst á. Raunar finnst allt að 200% munur á söluverði á uppsjávarfiski hérna miðað við Noreg. Veiðigjöldin af uppsjávarfiski eru brotabrot af því sem gengur með þorsk eða annan botnfisk og því er með öllu óskiljanlegt hvers vegna hagkvæmasta útgerðin fær lægsta veiðigjaldið.
Samkvæmt Verðlagsstofu skiptaverðs er fiskverð vegið meðaltal verða á frjálsum markaði þrjá undangengna mánuði. Af því eru síðan tekin 20% án sýnilegrar ástæðu og jafnframt fimm prósent í viðbót vegna markaðsgjalda. Því borgar útgerðarmaður sem landar hjá sjálfum sér ekki nema 75% af meðalverði, af þessu verði eru laun sjómanna síðan reiknuð.
Kveikur rakti þann 18. febrúar 2021 hvernig útgerð háttar málunum þannig að þeir sjálfir kaupafiskinn af sér erlendis og með því hafa þeir meiri stjórn á skattheimtu vegna launauppgjörs sjómanna. Þar sem sölufélagið er staðsett í skattaskjóli þá er skattheimtan af hagnaðinum síðan minni. Þessir fjármunir skila sér því ekki til Íslands.
Áður hefur komið fram að frjálslega er farið með ísmagn í fiski og hefur munurinn hlaupið á nokkrum prósentum. Kveikur rakti þann 21. nóvember 2017 málið og hefur Fiskistofa síðan þá tekið stikkprufur sem í sumum tilvikum sýna nokkurra prósenta frávik í vigtun frá því sem upp er gefið. Þar sem flestar lóðrétt samþættaðar útgerðir hafa leyfi til endurvigtunar má ætla að vandamálið hafi lítið lagast. Fiskistofa hefur tekið stikkprufur, þær eru hins vegar það fáar talsins að gögnin sem úr því koma eru ekki tölfræðilega marktæk.
Ef Píratar fá þessu ráðið ætti verðmyndun á afurðum hafsins að taka stakkaskiptum. Hægt verður að fella niður Verðlagstofu skiptaverðs. Koma ábyrgð á eftirfylgni með launamálum og samningsbrotum við sjómenn til félaga þeirra og eftirliti með raunverulegri skekkju við verðmyndun til Samkeppnisstofnunar. Við þurfum ekki sérstaka stofnun til þess að aðstoða útgerðina við að borga lægri skatta.
Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Pírata í Norðvesturkjördæmi.