Að gefa eigur ríkisins

Rannsóknarsérfræðingur við lagadeild Háskóla Íslands segir skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut Íslandsbanka vekja upp spurningar um hvort salan hafi falið í sér ólögmæta ívilnun til tiltekinna fyrirtækja í skilningi EES-samningsins.

Auglýsing

Sam­kvæmt 61. gr. EES-­samn­ings­ins er ríkjum á EES-­svæð­inu bannað að raska sam­keppni með því að nýta fjár­muni rík­is­ins til þess að ívilna ákveðnum fyr­ir­tækj­um. Í fram­kvæmd þýðir þetta m.a. að þegar íslenska ríkið selur eigur sín­ar, þá þurfi að gæta þess að þeim fyr­ir­tækjum sem heim­ilað er að kaupa, sé ekki veitt ívilnun með kaup­un­um, sem öðrum sam­bæri­legum fyr­ir­tækjum bjóð­ist ekki. Örugg­asta leiðin til þess að koma í veg fyrir slíka ólög­mæta ívilnun er að við­hafa opið útboð á þeirri eign sem selja skal og selja hæst­bjóð­anda. Ef víkja á frá slíku sölu­fyr­ir­komu­lagi þarf að gæta var­úðar til þess að raska ekki sam­keppni á milli fyr­ir­tækja og mik­il­vægt er að hlut­læg, gagnsæ og lög­mæt sjón­ar­mið búi að baki ef önnur sjón­ar­mið en hæsta verðið eiga að ráða því hver fær að kaupa.

Nú er út komin skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu rík­is­ins á stórum eign­ar­hlut í Íslands­banka. Í henni er ekki tekin afstaða til sölu­ferl­is­ins með til­liti til rík­is­að­stoð­ar­reglna EES-­samn­ings­ins, en við lestur á henni vakna óneit­an­lega spurn­ingar um hvort salan hafi falið í sér ólög­mæta ívilnun til til­tek­inna fyr­ir­tækja í skiln­ingi hans.

Fyrir liggur að eign­ar­hlutur rík­is­ins í Íslands­banka flokk­ast sem fjár­munir rík­is­ins í skiln­ingi rík­is­að­stoð­ar­regln­anna. Fyrir liggur að ein­ungis völdum aðil­um, mest fyr­ir­tækjum sem valin voru af sölu­ráð­gjöf­um, bauðst að taka þátt í útboð­inu. Fyrir liggur sömu­leiðis að tekin var sér­stök ákvörð­un, sem borin var undir fjár­mála­ráð­herra til sam­þykktar í sím­tali, um að selja ekki hæst­bjóð­endum hlut­inn, heldur að freista þess að fá ákveðin erlend fyr­ir­tæki að borð­inu með því að bjóða lægra verð.

Auglýsing

Af hálfu rík­is­ins var því tekin sér­stök ákvörðun um að ívilna til­teknum fyr­ir­tækjum með því að bjóða þeim að kaupa eigur rík­is­ins á lægra verði en sem nam mark­aðs­verði og því verði sem til­boðs­gjafar voru reiðu­búnir að greiða. Í hlut­ar­ins eðli liggur að þessi ráð­stöfun var til þess fallin að raska sam­keppni á milli fyr­ir­tækja í fjár­fest­inga­starf­semi á EES-­svæð­inu á þann hátt að sumum bauðst að kaupa eigur íslenska rík­is­ins á afslætti en öðrum ekki.

Ekki er neinar við­hlít­andi skýr­ingar að finna í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar sem rétt­læta þessa ívilnun til þess­ara völdu aðila, sem ætla má að nemi á bil­inu 1,6 – 2,25 millj­örðum eftir því hvort miðað sé við mark­aðs­verð eða það verð sem til­boðs­gjafar voru reiðu­búnir að greiða sam­kvæmt inn­sendum til­boð­um.

Hér skal ekki full­yrt að um ólög­mæt rík­is­að­stoð hafi verið veitt í gegnum útboðið og þar með lög um rík­is­að­stoð brot­in. Sú atburð­ar­rás sem lýst er í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar ætti þó að verða Eft­ir­lits­stofnun EFTA til­efni til þess að taka þennan gjörn­ing til rann­sóknar með til­liti til skuld­bind­inga Íslands sam­kvæmt EES-­samn­ingn­um.

Höf­undur er rann­sókn­ar­sér­fræð­ingur við laga­deild Háskóla Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar