Áskorun til þingmanna: Takið þátt í Veganúar!

Ungir umhverfissinnar og Samtök grænkera á Íslandi skora á þingmenn að taka þátt í Veganúar og hefja þannig nýtt ár með „ákvörðun í þágu siðferðis, umhverfis og framtíð okkar allra“.

UU aðsend grein
Auglýsing

Kæru þing­menn,

vin­sælt er að setja sér ára­móta­heit þegar nýtt ár fer að nálgast; fara oftar í rækt­ina, gera fleiri góð­verk, keyra bíl­inn minna. Nú er árið 2022 að líða og 2023 að ganga í garð og lík­legt að mörg séu farin að brjóta heil­ann um mögu­leg ára­móta­heit. Okkur langar að veita ykkur inn­blástur og leggja til eitt ára­móta­heit sem þið getið sett ykk­ur: að taka þátt í Vegan­ú­ar.

Fyrsti mán­uður nýs árs er jan­ú­ar, en hann hefur einnig verið til­eink­aður græn­kera­lífs­stílnum undir heit­inu Vegan­úar. Í þessum mán­uði er fólk hvatt til að til­einka sér græn­kera­lífstíl með því að hætta neyslu á dýra­af­urðum í einn mánuð og sjá hvernig þeim lík­ar.

Auglýsing

Fólk ger­ist græn­kerar af marg­vís­legum ástæð­um. Fjöl­mörg taka upp plöntu­miðað matar­æði vegna jákvæðra áhrifa á eigin heilsu enda sýna rann­sóknir að græn­kera matar­æði dragi úr blóð­þrýst­ingi, kól­ester­óli og líkum á ýmsum sjúk­dóm­um. Önnur ger­ast græn­kerar vegna nýs gild­is­mats sem setur líf og vel­ferð dýra sem og umhverfið ofar þeirri skamm­tíma­nautn sem neysla dýra­af­urða veit­ir. Dýra­af­urðir hafa nefni­lega mikil og nei­kvæð áhrif á líf­fræði­lega fjöl­breytni og lofts­lag jarðar vegna ósjálf­bærar land­notk­un­ar, áburða­notk­un­ar, og los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem veldur útrým­ingu við­kvæmra teg­unda og lofts­lags­breyt­ing­um. Plöntu­fæði kemur þar að auki í veg fyrir þján­ingu og ótíma­bæran dauða sak­lausra dýra.

Ungir umhverf­is­sinnar og Sam­tök Græn­kera á Íslandi skora því hér með á ykk­ur, kæru þing­menn, til að taka þátt í Vegan­ú­ar. Hefjið árið 2023 með ákvörðun í þágu sið­ferð­is, umhverfis og fram­tíð okkar allra.

Við vonum að þið takið þess­ari áskorun sem flest og hvetjum ykkur til að mæta á upp­hafsvið­burð Vegan­úar sem hald­inn verður 3. jan­úar í Bíó Para­dís.

Höf­undar eru lofts­lags­full­trúi Ungra umhverf­is­sinna og rit­ari Sam­taka græn­kera á Íslandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar