Bakherbergið: Baráttan gegn sykrinum

sugar.jpg
Auglýsing

Reglu­lega skýtur upp koll­inum umræða um neyslu­skatta, ekki síst skatta og gjöld sem ætluð til þess að bæta lýð­heilsu fjöld­ans. Hinn svo­nefndi syk­ur­skattur hefur oftar en ekki verið mið­punkt­ur­inn í þessum deilum hér á landi. Fólk lítur ýmist á skatt á sykur sem óþarfan skatt, þar sem fólk eigi að ráða því sjálft hvað það borð­ar, án þess að ­reynt sé að stýra því sér­stak­lega með sköttum hvað það er að borða. Annað sjón­ar­mið er að síðan að nota einmitt skatta og gjöld til þess að bæta haga heild­ar­inn­ar, vinna gegn óhóf­legu sykur­áti, sem hvort eða er sé borgað af öllum í gegnum sam­rekstur heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Eld­messa fjöl­miðla­manns­ins frá­bæra, John Oli­ver, um þessi mál hefur vakið mikla athygli. Hann bendir á að rann­sóknir séu að sýna betur og bet­ur, að sykur sé hættu­legur og veru­lega óholl­ur, og hafi svipuð áhrif á heil­ann og fíkni­efnið kóka­ín. Sér­stak­lega í því magni sem almenn neysla í Banda­ríkj­unum er núna, sem nemur 22 teskeiðum af sykri, hjá hverjum ein­stak­lingi, á hverjum degi.

Í ljósi þess að óhóf­leg syk­ur­neysla er fyrir löngu orðið alþekkt og við­ur­kennt alþjóð­legt vanda­mál, þá spyrja margir í bak­her­bergj­un­um, hvort ekki sé í því heil­brigði skyn­semi að vinna gegn þessu kostn­að­ar­sama böli með sköttum og gjöld­um? Eitt er víst að hags­muna­að­il­ar, gos­drykkja- og sæl­gæt­is­fram­leið­endur meðal ann­arra, munu vafa­lítið berj­ast gegn því, eins og þeir hafa alltaf gert. En hvað með það? Skiptir afstaða þeirra ein­hverju máli? Geta þeir eitt­hvað frekar en aðrir túlkað stað­reyndir og rann­sókn­ir? Rétt­ast væri að kalla þetta réttum nöfnum og með réttri nálg­un; Bar­áttan gegn sykrin­um. Ef það þarf neyslu­skatta, til við­bótar við stans­lausan boð­skap um heilsu­sam­legan lífstíl, þá verður svo að vera.

Auglýsing

Íslend­ingar éta víst að með­al­tali 50 kíló af sykri á ári, hver mað­ur. Það er marg­falt of mikið og óhóf­legt.

Sjá má innslag John Oli­ver hér með­fylgj­andi.

https://www.youtu­be.com/watch?v=­MepX­BJjsNxs

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None