Bakherbergið: Telur forsetinn stjórnarfarið skorta stöðugleika?

15247571896-249601b780-z.jpg
Auglýsing

Ólafur Ragnar Gríms­son, for­seti Íslands, tók af allan vafa í við­tali við sjón­varps­þátt­inn Eyj­una í gær um að hann ætli að sitja út þetta kjör­tíma­bil.

Í því voru fólgin tölu­verð tíð­indi, enda hefur Ólafur Ragnar ekki viljað svara því hvort hann hafi ætlað sér að sitja út kjör­tíma­bilið eða hætta fyrr, þegar leitað hefur verið svara við þeirri spurn­ingu. Ljóst er að ummæli for­set­ans um hvað hann ætli að gera hafa verið mjög mis­vísandi.

Þegar Ólafur Ragnar Gríms­son sendi frá sér yfir­lýs­ingu þann 4. mars 2012 þá sagði í henni: „Það er þó ein­læg ósk mín að þjóðin muni sýna því skiln­ing þegar stöð­ug­leiki hefur skap­ast í stjórn­skipan lands­ins og stjórn­ar­fari og staða okkar í sam­fé­lagi þjóð­anna hefur skýr­st, ákveði ég að hverfa til ann­arra verk­efna áður en kjör­tíma­bilið er á enda og for­seta­kjör fari þá fram fyrr en ella“.

Auglýsing

yfirlysingORG

Skömmu síðar sagði Ólafur Ragn­ar m.a.: „Og eftir þónokkra umhugsun þá varð það nið­ur­staða mín að verða við þessum óskum, en þó með þeim fyr­ir­vara, eins og ég nefndi í yfir­lýs­ing­unni, að þegar von­andi allt verður orðið stöðugra og kyrrð hefur færst yfir, bæði varð­andi stjórn­skipun og stöðu mála í land­inu, þá hafi menn á því skiln­ing að ég muni þá ekki sitja út allt næsta kjör­tíma­bil, og for­seta­kosn­ingar færu þá fram fyrr en ella.“

Örn­ólfur Thors­son for­seta­rit­ari sagði við frétta­stofu RÚV þann 17. júlí síð­ast­lið­inn að for­set­inn ætl­aði sér ekki að veita við­tal um þetta efni, hvort hann hygg­ist sitja út kjör­tíma­bil­ið, enda ræði hann „það ekki sem fram hafi komið í kosn­inga­bar­áttu, eftir að hann hefur tekið við emb­ætti. Umræða í kosn­inga­bar­áttu verði ekki fram­lengd inn í emb­ætt­is­tíð for­set­ans“.

Í Bak­her­bergj­unum túlka menn það sem svo að for­set­inn telji hvorki hafa skap­ast stöð­ug­leiki í stjórn­skipan lands­ins og stjórn­ar­fari, né að staða Íslands í sam­fé­lagi þjóða hafi skýrst. Því þurfi þjóðin á Ólafi Ragn­ari að halda í að minnsta kosti tæp tvö ár í við­bót. Í við­tal­inu í gær úti­lok­aði for­set­inn raunar ekki að bjóða sig fram enn einu sinni. Mögu­lega veltur sú ákvörðun á því hvort sitj­andi stjórn­völd nái að sann­færa for­set­ann um að þau séu starfi sínu vaxin og þurfi ekki á áfram­hald­andi við­veru hans að halda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None