Bakherbergið: Katrín með skarpa greiningu á snjóhengjunni

kata-jak.jpg
Auglýsing

Í bak­her­berg­inu hefur fólk sem venju að tala helst um stjórn­mála­menn sem eina heild, óháð flokk­um. Það hjálpar til við að sjá stóru mynd­ina þegar kemur að verk­efnum stjórn­mála­manna; á end­anum skiptir það almenn­ing ekki öllu máli í hvaða flokkum fólkið er sem tekur ákvarð­an­ir.

Ekki síst þess vegna hefur verið for­vitni­legt og áhuga­vert að fylgj­ast með umræðu um hvernig mögu­legt getur verið að rýmka fjár­magns­höftin og með tím­anum hugs­an­lega afnema þau. Í bak­her­berg­inu rifjar fólk upp að ekki sé annað að sjá en að orð Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra í gegnum árin stand­ast nokkuð vel; afnám hafta þarf að skoð­ast í sam­hengi við aðstæður í efna­hags­líf­inu og útfærslan fer að ein­hverju leyti eftir þeim. Síðan hafa stjórn­völd og seðla­bank­inn aðeins „eitt skot“ sem verður að heppn­ast. Það hefur ekki farið fram­hjá neinum að skot­færið er núna, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, virð­ist átta sig vel á mik­il­vægi góðrar sam­vinnu við seðla­bank­ann um þetta mál. Bjarni er að halda vel á spöð­un­um, segir fólkið í bak­her­berg­inu.

Einn þeirra stjórn­mála­manna sem mætti láta meira til sín taka í opin­berri umræðu, að mati fólks í bak­her­berg­inu, er Katrín Jak­obs­dóttir for­maður Vinstri grænna og fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Hún hefur alla burði til þess að verða helsti leið­togi félags­hyggju­fólks á Íslandi, ef hún er það þá ekki nú þeg­ar, kannski ómeð­vit­að. Hún er virt af and­stæð­ingum sínum og sam­herjum ekki síst fyrir hvað hún er skörp, segir fólkið í bak­her­berg­inu. Þetta sést ágæt­lega í grein­ingu sem hún skrif­aði á hina ágætu vef­síðu snjó­hengj­an.is fyrir kosn­ing­arnar í fyrra, sem Jóhann Jóhanns­son rekstr­ar­hag­fræð­ingur er í for­svari fyr­ir, en henni er ætlað að efla vit­und almenn­ings um snjó­hengju­vanda­málið og afnám hafta.

Auglýsing

Katrín segir orð­rétt: „Út­göngu­skattur kæmi einnig til greina ef ekki væri útlit fyrir við­un­andi nið­ur­stöðu í samn­ing­um. Aðal­at­riðið er að upp­gjörið sé sett í sam­hengi við aðra þætti í afnáms­ferli gjald­eyr­is­hafta eins og gömlu snjó­hengj­una. Einnig þarf að tryggja að ekki verði fall á gengi krón­unnar en það myndi ógna stöð­ug­leika hag­kerf­is­ins og hafa mikil áhrif á heim­ili og fyr­ir­tæki vegna þeirra verð­bólgu sem slíkt hefði í för með sér. Vinna við afnám gjald­eyr­is­hafta er for­gangs­mál og stjórn­völd eiga að fá utan­að­kom­andi aðila til að tryggja að farið verið í það ferli með heild­rænum hætti. Við leysum þetta mál ekki með því að taka á afmörk­uðum vanda innan haft­anna heldur með því að ná utan um umfang hans í heild. Snjó­hengjan er einn þáttur en vinnu við hana þarf að skoða í sam­hengi við upp­gjör þrota­bús bank­anna enda á þjóð­ar­búið tak­mark­aðan gjald­eyri til að greiða til aðila sem vilja út með sínar krón­ur. Þetta er því ekki ein­ungis skulda­vandi heldur gjald­eyr­is­vandi líka. Einnig er mik­il­vægt að sú þverpóli­tíska nefnd sem hefur unnið að afnáms­ferl­inu haldi áfram til að tryggja sam­stöðu um ferl­ið.“

Þetta er nokkurn veg­inn það sem stjórn­völd eru að gera núna, og seðla­bank­inn hefur raunar alltaf lagt upp með­...

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None