Bakherbergið: Er meðaltal fyrstu skuldaniðurfellingar 261 þúsund?

peningogpizzur.jpg
Auglýsing

Búist er við því að hver og einn sem sótti um skulda­nið­ur­fell­ingar rík­is­stjórn­ar­innar fái að vita hvað falli í hans skaut í lok vik­unn­ar. Upp­haf­lega stóð reyndar til að nið­ur­staðan yrði til­kynnt í byrjun októ­ber­mán­að­ar, en það hefur ítrekað frestast, meðal ann­ars vegna þess að ekki hafa náðst samn­ingar við Arion banka, Íslands­banka og Lands­banka um nið­ur­færslur þeirra verð­tryggðu lána sem eru hjá bönk­un­um, að minnsta kosti þegar síð­ast frétt­ist. Ljóst er hins vegar að margir sem kusu Fram­sókn­ar­flokk­inn í þeirri von að hús­næð­is­lánin þeirra myndu hverfa búast við því að fá dágóða summu inn á lánið sitt í byrjun næstu viku. Það er hætt við því að þeir verði fyrir von­brigð­um.

Í Bak­her­bergj­unum hafa menn nefni­lega verið að reikna. Alls sóttu 69 þús­und manns um skulda­nið­ur­fell­ingu. Hún á að kosta 72 millj­arða króna og mun greið­ast út á fjórum árum. Það þýðir að ef allir sem sóttu um verða sam­þykktir mun hver og einn fá rúma milljón króna að með­al­tali í heild­ar­nið­ur­færslu. Sú upp­hæð sem hver og einn getur að með­al­tali búist við að fá greitt inn á lánið sitt eftir helgi er um 261 þús­und krón­ur.

Stjórn­völd þurfa því að und­ir­búa almanna­tengslin nokkuð vel áður en nið­ur­fell­ing­ar­á­huga­fólkið fær frétt­irnar því hætt er við að þeir allra síð­ustu sem enn eru á þeim vagni muni kipp­ast við, og jafn­vel hoppa af, þegar pizzu-­send­ingin marg­un­mrædda verður lítið annað en ísköld hálf níu tomma.

Auglýsing

Ef fólk sætt­ir sig ekki við nið­ur­­­stöð­una verður að vísu hægt að vísa henni til sér­­stakr­ar áfrýj­un­­ar­­nefnd­ar sem þegar hef­ur verið skip­uð. Í hana var skipað af fjár­­­mála­ráð­herra og sam­­kvæmt til­­­nefn­ingu frá Hæsta­rétti. Í Bak­her­bergj­unum er talað um þessa nefnd sem eina þá skrýtn­ustu sem skipuð hefur ver­ið. Hlut­verk hennar er bein­leiðis að bregð­ast við óánægju þeirra sem eru ekki sáttir með magn pen­inga sem stjórn­völd ákváðu að gefa því á kostnað ann­arra.

Athuga­semd frá Frosta Sig­ur­jóns­syni, for­manni efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar:

„Höf­uð­stóll hús­næð­is­lána lækkar í einu lagi og en ekki í fjórum áföngum eins og ýjað er að í bak­her­berg­in­u. ­Bank­arnir fá hins vegar greitt í fjórum áföng­um."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None