Bakherbergið: Sigmundur tíður gestur hjá 365 en hunsar RÚV

9951399013-d1d9280f9b-o.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra verður gestur Jóns Ársæls Þórð­ar­sonar í sjón­varps­þætt­inum Sjálf­stæðu fólki, sem sýndur verður á Stöð 2 næst­kom­andi sunnu­dags­kvöld. Þegar sú stund rennur upp mun Sig­mundur Davíð hafa verið gestur í þremur mis­mun­andi sjón­varps­þáttum hjá Stöð 2, þrjár helgar í röð.

Það vill nefni­lega svo til að for­sæt­is­ráð­herra var ­gestur Loga Berg­mann í sam­nefndum sjón­varps­þætti á stöð 2 föstu­dags­kvöldið 10. októ­ber þar sem slegið var á létta strengi, og þá sat Sig­mundur Davíð fyrir svörum í sjón­varps­þætt­inum Eyj­unni, í umsjón Björns Inga Hrafns­son­ar, sunnu­dag­inn 19. októ­ber, þar sem for­sæt­is­ráð­herr­ann meðal ann­ars dásam­aði skulda­nið­ur­fell­ing­una.

Í bak­her­berg­inu er velt vöngum yfir gríð­ar­legum vin­sældum for­sæt­is­ráð­herra hjá 365 fjöl­miðla­sam­steypunni, en að baka til­ var líka tölu­vert smjattað á því þegar Björn Ingi, fyrrum Fram­sókn­ar­for­kólfur í borg­inni, og Jón Ásgeir efndu til sam­starfs á sínum tíma sem meðal ann­ars leiddi til þess að sá fyrr­nefndi byrj­aði með sinn eigin sjón­varps­þátt á Stöð 2.

Auglýsing

Þá vekja tíðar komur for­sæt­is­ráð­herra inn á sjón­varps­skjái lands­manna, í boði Jóns Ásgeirs og 365, ekki síður athygli í bak­her­berg­inu fyrir þær sakir að frétta­stofu RÚV hefur ekk­ert gengið að fá Sig­mund Davíð í við­tal að und­an­förn­u til að svara fyrir þau mál sem helst klaga upp á Fram­sókn­ar­flokk­inn, og eru þau ófá, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raun­ir. Til að mynda hefur bak­her­bergið áreið­an­legar heim­ildir fyrir því að frétta­stofan hafi reynt nán­ast sleitu­laust síðan á laug­ar­dag­inn að fá við­tal við for­sæt­is­ráð­herrann, án árang­urs.

En kannski á tregða for­sæt­is­ráð­herra gagn­vart RÚV sér eðli­legar skýr­ing­ar. Hann er jú mjög upp­tek­inn mað­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None