Bakherbergið: Voru allir á vestrænum mörkuðum að reykja krakk?

15897053591-072636ce90-z.jpg
Auglýsing

Ný bók um Björgólf Thor Björg­ólfs­son hefur vakið mikla athygli und­an­farna daga. Björgólfur hefur verið í við­hafn­ar­við­tölum við suma íslenska fjöl­miðla og aðrir hafa birt heilu kafl­anna úr henni.

Bókin er nokk­urs konar upp­gjör Björg­ólfs við hrunið og um leið boðun á end­ur­komu hans í full­orð­ins­deild alþjóð­legra við­skipta, enda Björgólfur aftur orð­inn stjarn­fræði­lega ríkur eftir að átt á hættu að missa nán­ast allt sitt. Eða svona næstum því.

Í bók­inni fer Björgólf­ur, sem er við­ur­kenndur samn­inga­fík­ill, yfir hvernig hann varð ríkur á að selja bjór í stór­hættu­legu Rúss­landi, hvernig egó og minni­mátt­ar­kennd dreif hann áfram í að kaupa Lands­bank­ann á sínum tíma, 30 millj­arð­anna sem hann setti í sjóð handa börnum sín­um, ást­ina, einka­þot­ur, karla­ferð­ir, afmæl­is­veislur með 50 cent og allt hitt sem góður fjár­festa­þriller þarf að inni­halda.

Auglýsing

Þótt bókin sé aug­ljós­lega skrifuð fyrir alþjóð­legan markað þá er einnig að finna í henni skila­boð til Íslend­inga. Björgólfur leið­réttir meðal ann­ars þann hvim­leiða mis­skiln­ing að orsök hruns­ins hafi verið að finna í íslensku bönk­unum og fræðir okkur um að grunnur þess hafi legið í brota­lömum alþjóða­fjár­mála­kerf­is­ins.

Krakkpípa. Krakk­pípa.

Les­endur í bak­her­bergj­unum hnutu um þessa skýr­ingu hans og sér­stak­lega hvernig Björgólfur ákvað að setja hana fram. Í bók­inni stendur nefni­lega orð­rétt að „at­burðir áranna 2007 og 2008 voru alþjóð­leg­ir. Í þetta sinn þá var eins og bók­staf­lega allir á hinum vest­rænu mörk­uðum væru að reykja krakk (e. crack cocaine) og hafi ekki tekið eftir því að kerfið í heild sinni, eigna­mark­aðir og jafn­vel heilu þjóð­rík­in, væru að falla“.

Í kjöl­farið spáir Björgólfur því að alþjóð­leg kreppa muni ríða yfir næstu eftir tólf til 24 mán­uði. Í bak­her­bergj­unum von­ast menn til þess að krakk­neysla komi ekki í veg fyrir að hægt verði að lág­marka skað­ann af þeirri kreppu, reyn­ist Björgólfur sann­spár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None