Er Skúli Mogensen svona erfiður í samstarfi?

skulimoege.jpg
Auglýsing

Það kom fæstum í við­skipta­líf­inu á óvart þegar til­kynnt var um það í dag að Birgir Jóns­son, sem var ráð­inn aðstoð­ar­for­stjóri WOW air í nóv­em­ber síð­ast­liðn­um, hefði látið af störfum. Ástæðan fyrir þeim skorti á undrun hefur ekk­ert með Birgi að gera, enda þaul­reyndur flug­rekstr­ar­mað­ur, heldur það að WOW air hefur verið ákaf­lega dug­legt að skipta um stjórn­endur und­an­farin ár. Og miðað við tíðn­ina virt­ist orðið tíma­bært að hreinsa til á ný.

WOW air hóf áætl­un­ar­flug sum­arið 2012. Síðan þá hefur starfs­manna­veltan á meðal fram­kvæmda­stjóra og lyk­il­stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins slegið nálægt Íslands­meti.

Allt hófst þetta á for­stjóra­skiptum í lok sum­ars 2012, þegar Skúli Mog­en­sen, eig­andi WOW air, tók sjálfur við stjórn­ar­taumunum af Baldri Oddi Bald­urs­syni.

Auglýsing

Næstur til að láta af störfum var Matth­ías Ims­land, þá fram­kvæmda­stjóri flug­rekstr­ar­sviðs WOW air. Hann hætti í októ­ber 2012 og snéri sér að því að stýra kosn­inga­bar­áttu Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann er nú aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dótt­ur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra.

Næstur í röð­inni til að yfir­gefa WOW air var Guð­mundur Arnar Guð­munds­son, þá for­stöðu­maður mark­aðs­sviðs, en hann hætti í apríl 2013 eftir að hafa starfað hjá félag­inu í rúm­lega eitt ár. Í des­em­ber það ár hætti Guð­rún Ein­ars­dótt­ir, sem hafði verið starfs­manna­stjóri WOW air í um átta mán­uði, störfum og í febr­úar 2014 var röðin komin að Ágústu Hrund Stein­ars­dótt­ur, þá mark­aðs­stjóra WOW air, að hætta störf­um.

Árið 2014 var stórt ár hjá WOW-hringekj­unni. Í mars var greint frá því að Inga Birna Ragn­ars­dóttir hefur látið af störfum sem fram­kvæmda­stjóri og aðstoð­ar­for­stjóri flug­fé­lags­ins WOW air. Í maí hætti Linda Jóhanns­dótt­ir, þá fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs WOW air, störfum eftir að hafa starfað hjá fyr­ir­tæk­inu í um tvö ár og í ágúst var þeim Tómasi Inga­syni, þá for­stöðu­manni við­skipta­þró­un­ar­sviðs WOW air, og Arn­ari Má Arn­þórs­syni, þá fram­kvæmda­stjóra sölu- og mark­aðs­sviðs, sagt upp störf­um. Tómas hafði starfað hjá fyr­ir­tæk­inu frá því í byrjun árs 2014 og Arnar í rúma þrjá mán­uði.

Í apríl 2015 var greint frá því að Björn Ingi Knúts­son, fram­kvæmda­stjóri flug­rekstr­ar­sviðs WOW air, hefði sagt starfi sínu lausu. Hann hafði starfað hjá fyr­ir­tæk­inu í tæp tvö ár. Í ágúst síð­ast­liðnum var til­kynnt að Stefán Sig­urðs­son hefði verið ráð­inn fjár­mála­stjóri WOW og að Guð­rún Valdi­mars­dótt­ir, sem gegnt hafði því starfi, myndi fara í önnur störf á vegum fjár­fest­inga­fé­lags Skúla Mog­en­sen, Tít­an.

Í dag var svo til­kynnt um að Birgir væri hætt­ur. Hann er reyndar ekki óvanur því að staldra stutt við hjá flug­fé­lagi því í andaslitrum Iceland Express náði Birgir að vera for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í heila tíu daga, áður en hann hætti á eft­ir­minni­legan hátt eftir deilur við eig­and­ann Pálma Har­alds­son.









Lítið notuð vekjara­klukka til sölu. Á sama stað fást nær ónotuð jakka­föt gef­ins.

Posted by Birgir Jóns­son on Tues­day, Aug­ust 25, 2015







Í bak­her­berg­inu velta menn því fyrir sér hvað valdi því að fram­kvæmda­stjórar og lyk­il­starfs­menn hald­ist svona illa í starfi hjá WOW air. Skúli Mog­en­sen sagði sjálfur í við­tali við Frétta­blaðið í fyrra, þegar enn ein upp­sagn­ar­hrinan var nýlega afstað­in, að fyr­ir­tækið gerði kröfur og ætl­aði sér enn stærri hluti í fram­tíð­inni. „Það er alveg ljóst að það hentar ekki öllum að vinna undir slíku álagi til lengdar og það er líka mjög eðli­legt að skipta um mann­skap. Það þarf mis­mun­andi hæfi­leika til að fara úr núll í tíu millj­arða og svo úr tíu í 30 millj­arða.“

Það þarf því ekk­ert að vera að Skúli sé það erf­iður í sam­starfi að tólf yfir­menn hafi verið reknir eða hætt hjá WOW air á þremur árum. Kannski er þetta bara mjög eðli­leg starfs­manna­velta eftir allt sam­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None