Fólk með fíknivanda talið besta tekjulindin

Ísak Regal skrifar um hugmynd HHÍ að setja á laggirnar spilavíti á Íslandi. „Persónulega finnst mér ekki rétt að halda áfram að byggja stærstu menntastofnun landsins á eymd og þjáningu fólks með alvarlegan fíknivanda.“

Auglýsing

Í frétt Kjarn­ans frá því í gær kemur fram að Happ­drætti Háskóla Íslands vilji opna svo­kallað spila­víti á Íslandi sem og að bjóða upp á fjár­hættu­spil á net­inu. Til­laga þess efnis er í minn­is­blaði sem fjöl­mið­ill­inn hefur undir hönd­um, en hann greinir frá því að í blað­inu sé not­ast við annað orða­lag en spila­víti og lagt til að leyfi verði veitt til að opna „spila­höll (casínó)“.

Þetta hljómar eins og eitt­hvað sem maf­ían myndi gera. Auk þess að reka casínó myndi maf­ían kannski standa í stór­tækri fíkni­efna­sölu og sölu á vændi. Maf­ían myndi þó kannski ekki reyna að beita fyrir sér rök­semda­færslu eða koma með hina eilífu afsök­un; fólk er hvort eð er að kaupa vændi og fíkni­efni svo hví getur HHÍ ekki boðið upp á sömu þjón­ustu?

En svipuð orð voru einmitt notuð í rök­stuðn­ingi til­lög­unnar frá HHÍ þar sem segir að Íslend­ingar í dag hafi greiðan aðgang að erlendu og ólög­legu pen­inga­spili á net­inu. „Það skýtur því skökku við að inn­­­lendir sér­­­leyf­­is­hafar hafi ekki mátt bjóða upp á pen­inga­­spil á Net­inu og þarf að leið­rétta það mis­­ræmi.“

Auglýsing

Ég hef ekki sótt tíma í hag­nýtri sið­fræði við Háskóla Íslands en gengur hún ekki einmitt út á eitt­hvað þver­öf­ugt við þetta batt­erí? Ég við­ur­kenni að ég er eng­inn sér­fræð­ingur i þessum efnum en per­sónu­lega finnst mér ekki rétt að halda áfram að byggja stærstu mennta­stofnun lands­ins á eymd og þján­ingu fólks með alvar­legan fíkni­vanda.

Sam­kvæmt frétt sem birt var í Guar­dian fyrr á árinu glíma um 1,4 millj­ónir manna á Bret­landi við spilafíkn og eru enn fleiri, eða um 1,5 millj­ón­ir, í áhættu­hópi. Í sömu grein segir að spilafíkn kunni að vera níu sinnum algeng­ari en þjón­ustur sem bjóði upp á fjár­hættu­spil telja. Þetta kemur fram í árlegri rann­sókn Gamble Aware.

Spilafíkn er alvar­legt vanda­mál víða um heim. Nieves Murray, fram­kvæmda­stjóri Suicide Prevention í Ástr­al­íu, stofnun sem beitir sér fyrir því að koma í veg fyrir sjálfs­víg, kall­aði nýlega eftir úrræðum og lagaum­bótum vegna spilafíknar þar í landi.

Hvernig getur rík­is­stjórn Íslands tekið á þessum lýð­heilsu­vanda þegar stærsta mennta­stofnun lands­ins hagn­ast á því að við­halda vand­anum og vill nú ganga enn lengra en að reka bara spila­kassa og opna hreint og beint spila­víti og auk þess bjóða upp á fjár­hættu­spil á net­inu? Liggur ekki fyrir að tíðni sjálfs­morða eigi eftir að rjúka upp í kjöl­far­ið?

Maður myndi líka halda að einmitt Háskóli Íslands, þar sem margt snið­ugt, gott og vel gefið fólk starfar, geti fundið gáfu­legri og betri lausn við upp­bygg­ingu inn­viða. Ábyrg fjár­hættu­spilun er líka bein mót­sögn. Getum við ekki tekið ábyrgð sjálf, brotið heil­ann og beitt skyn­sem­inni? Það hlýtur að vera hægt að finna betri lausn við því að byggja upp mennta­stofnun á Íslandi en að reka casínó, opna vænd­is­hús eða selja fíkni­efni.

Höf­undur er rit­höf­und­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar