Helgi Sig er ekki Charlie Hebdo

moggamynd.jpg
Auglýsing

Skop­mynd Helga Sig­urðs­son­ar, skop­mynda­teikn­ara Morg­un­blaðs­ins, sem birt­ist í blað­inu í gær hefur vakið mikla athygli, og hlotið gríð­ar­lega gagn­rýni. Hana má sjá hér að ofan. Sam­fé­lags­miðlar hafa hrein­lega logað vegna hennar og umræða um hana verið lituð miklum hita. Flestum virð­ist þykja myndin afar ósmekk­leg, end­ur­spegla óþol eða ill­vilja í garð flótta­manna og bera öll merki þröng­sýni og jafn­vel kyn­þátta­for­dóma (enda allir skip­verjar á mynd­inni svart­ir). Þá hefur rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins einnig verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að birta mynd­ina. Sumir úr hópi gagn­rýnenda hafa gengið allt of langt og heimtað skerð­ingu á atvinnu­frelsi teikn­ar­ans, sem þó birtir efni sitt á ábyrgð rit­stjórnar Morg­un­blaðs­ins. Flestir hafa hins vegar látið sér nægja að lýsa skoð­unum sínum á mynd­inni.Charlie Hebdo Press Conference

Margir sjálf­skip­aðir unn­endur frelsis hafa séð sér leik á borði og vaðið af fullri hörku í þá sem gagn­rýna mynd Helga. Þeirra á meðal er þing­mað­ur­inn Brynjar Níels­son sem sagði á Face­book-­síðu sinni að „fólkið sem hafði mikla þörf á að tjá ást sína á Charlie Hebdo er froðu­fellandi af reiði vegna skop­myndar í Mogg­anum í gær. Þetta er mikið til sama fólkið og er upp­tekið af frið­helgi einka­lífs­ins og per­sónu­vernd nema þegar kemur að fjár­málum og tekjum ann­arra. Telur sig jafn­vel styðja frelsi í atvinnu og við­skiptum ef und­an­skilið er áfengi og allt kyn­lífstengt. Ég held að þetta fólk hafi litla ást á tján­ing­ar­frelsi og öðrum borg­ar­legum rétt­indum nema þegar það hentar þeim sjálf­um. Er þetta ekki sjálfselska frekar en ást á Charlie Hebdo?“

Í bak­her­berg­inu eru menn sam­mála um að fólk sem sýndi Charlie Hebdo sam­stöðu eftir að vopn­aðir menn réð­ust inn á skrif­stofur tíma­rits­ins og skutu ell­efu manns til bana sé ekki að sýna af sér óheyri­lega hræsni með því að gagn­rýna skop­mynd Helga Sig. Í gagn­rýni, jafn­vel þótt hún sé lituð með stórum lýs­ing­ar­orð­um, fel­ast nefni­lega ekki ­rit­stjórn­ar­til­burðir og þaðan af síður hótun eða beit­ing ofbeld­is.

Auglýsing

Helga Sig er frjálst að búa til ósmekk­legar skop­myndir og Morg­un­blað­inu er frjálst að birta þær. En á sama hátt er þeim sem finnst lítið til verks­ins koma full­frjálst að gagn­rýna það. Í því felst tján­ing­ar­frels­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None