Hvað er á seyði hjá stjórnvöldum og seðlabankanum?

10016524533-0ff5c08222-z1.jpg
Auglýsing

Það er ekki oft sem útgáfur á vönd­uðum skýrslum Seðla­banka Íslands, sem geyma mik­il­væga inn­sýn í gang mála í hag­kerf­inu, þurfa að bíða birt­ingar úr takti við útgáfu­á­ætlun sem fyrir ligg­ur. Skýrsl­urnar eru með mik­il­væg­ari gögnum sem fram koma á hverjum tíma, fyrir fjár­mála­mark­að­inn. Til þeirra er horft og ákvarð­anir geta verið á þeim byggð­ar, eða í það minnsta geta þær haft áhrif á það hvernig staða mála er ­greind á hverjum tíma og hlutum hrint í fram­kvæmd.

Hinn 6. októ­ber, sléttum sjö árum eftir að for­dæma­lausum neyð­ar­lögum var beitt til þess að vernda fjár­hags­legt sjálf­stæði Íslands, barst stutt til­kynn­ing frá Seðla­banka Íslands þar sem frá því var greint að útgáfu rits­ins Fjár­mála­stöð­ug­leika þyrfti að fresta. Orð­rétt segir í til­kynn­ing­unni. „Seðla­banki Íslands hefur ákveðið að fresta útgáfu rits­ins Fjár­mála­stöð­ug­leiki um nokkra daga þar sem komið hefur í ljós að áður ákveðin útgáfu­dag­setn­ing í dag hefur reynst óheppi­leg í ljósi þess að ekki hefur tek­ist að ljúka því sam­ráðs- og kynn­ing­ar­ferli sem reiknað var með að yrði lokið áður en ritið yrði birt. Ný útgáfu­dag­setn­ing verður birt fljót­lega. Kynn­ingin á efni rits­ins fellur því að sjálf­sögðu einnig nið­ur.“

Þessi stutta til­kynn­ing hefur gert lítið annað en að skilja eftir ósvar­aðar spurn­ing­ar, sem svo fá vængi, með réttu eða röngu, í umræðu á mark­aði. Kurr er kom­inn í hóp kröfu­hafa, sem spyrja nú hvort það geti verið að stjórn­völd og seðla­bank­inn séu að deila um ein­hver mál sem tengj­ast slita­bú­unum eða losun hafta. Hugs­an­lega sem snúa að stöð­ug­leika­fram­lag­inu, sem á að skila 334 millj­örðum í rík­is­sjóð, en ekki 500 eins og fram kom í glæru­kynn­ingu fram­kvæmda­hóps um afnám hafta í Hörp­u­nni í sum­ar.

Auglýsing

kronueignir

Seðla­bank­inn ætti að hafa það hug­fast, að hinn íslenski örmark­að­ur, inni­lok­aður í fjár­magns­höftum sem allt kapp er nú lagt á að losa um, er allur að fylgj­ast með því sem gengur á þessa dag­ana, og byggt á fyrri reynslu, þá ætti líka að ganga út frá því að það muni aldrei takast að halda upp­lýs­ingum frá almenn­ingi í myrkum bak­her­bergjum til lengd­ar.

Rit­stjórn Fjár­mála­stöð­ug­leika, sem að sjálf­sögðu á ekki að haga störfum sínum að neinu leyti eftir afskiptum stjórn­valda, mætti gefa betri og ítar­legri skýr­ingar á því hvers vegna útgáfa skýrsl­unn­ar, sem átti að birt­ast 6. októ­ber, hefur taf­ist. Því miður hafa þessar efn­islitlu skýr­ingar nú ekki gert neitt annað en dregið úr trú­verð­ug­leika seðla­bank­ans, í ljósi hinnar við­kvæmu og mik­il­vægu stöðu sem uppi er, vegna fram­kvæmd­ar­innar á áætlun um losun fjár­magns­hafta.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None