Þeir ætla ekki einasta að byggja húsnæði yfir þúsundir fyrir smotterí, sósíalistarnir hans Gunnars Smára, heldur ætla þeir líka að stórauka skattheimtu á eignir, erfðir og fjármagnstekjur og innleiða þannig, já, „innleiða meiri kærleika, sátt og réttlæti“ svo notuð séu þeirra eigin orð.
Og ekki allt upp talið. Þeir ætla líka að gera dulítið annað og meira, sósarnir.
Þann 13.05. '21 kynnti Sósíalistaflokkurinn stefnu sína í málefnum er snúa að ofbeldi hvers konar. Þar segir að kjósendum bjóðist að kjósa til valda flokk, í þingkosningum í haust, sem ætlar að ráðast í aðgerðir gegn hvers kyns ofbeldi, sem flokkurinn segir að sé rótgróið og kerfisbundið í samfélaginu. Aðferðin til þess að ná þessu markmiði fram var samþykkt á sameiginlegum fundi framkvæmda- og málefnastjórna Sósíalistaflokksins fyrr í dag (11.05.´21).Þar má lesa þetta:
Setja á laggirnar sérstakt ofbeldiseftirlit sem rannsakar eftir ábendingum eða eigin frumkvæði vinnustaði, skóla og opinbera staði. Eftirlitið muni þannig hafa vald til að bregðast við þar sem sýnt er að ofbeldi og/eða áreitni viðgengst. Þá verði eftirlitinu heimilt að fjarlægja ofbeldismenn, svipta staði starfsleyfi og beita öðrum leiðum til að tryggja starfsfólki, nemum og gestum öryggi. Einnig segir um téð eftirlit að því muni bera að einbeita sér sérstaklega að þeim stöðum þar sem valdaójafnvægi er mikið, vegna tekjumunar, aldursmunar eða ólíks uppruna, stöðu eða valds.
Setja á laggirnar sjálfstæð lögreglu- og ákærustofnun með hæfu starfsfólki sem sérhæfi sig í rannsókn og málsmeðferð kynferðisofbeldismála, lagi rannsóknaraðferðir að þörfum þolenda og alvarleika málanna. Þannig á stofnunin að geta styrkt málarekstur sinn fyrir dómstólum og sömuleiðis stuðning við brotaþola fyrir og eftir málflutning og meðan á honum stendur.
Veita brotaþolum gjafsókn til þess að sækja einkamál gegn brotamönnum.
Koma á fót „heimili fyrir brotamenn“ sem beita sambýlisfólk sitt, fjölskyldur og maka ofbeldi. Þannig skulu þeir fjarlægðir af heimilum sínum og á hið þar til gerða heimili. Fulltrúar „ofbeldiseftirlits“ mæti ætíð á vettvang heimilisofbeldis auk barnaverndaryfirvalda, búi börn við aðstæður þar sem ofbeldi þrífst.
Efna verði til námskeiða fyrir starfsfólk heilbrigðisstofnana og þá sem vinna við persónulega aðstoð fólks sem býr við fötlun, líkamlega eða andlega, eða getuskerðingu af einhverju tagi. Fræðslunni er ætlað að koma í veg fyrir ofbeldi af hendi umönnunaraðila hvort heldur meðvitað eða ómeðvitað og hvernig best sé að þekkja einkenni þess og bregðast við.
Þróa námsefni um kynjafræði, kynferðisofbeldi og annað ofbeldi og innleiða fyrir alla árganga leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Þá verði unnið fræðsluefni fyrir allan almenning.
Tryggja brotaþolum meðferð við áföllum sínum. Greiða skal sanngirnis- og miskabætur úr opinberum sjóðum til þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi og skaða og ekki geta sótt slíkar bætur í einkamálum. Bótanefnd miði við lægri sönnunarkröfu en reyndin er í sakamálum.
***
Þeir lofa því að kærleikurinn sé í hendi, forréttindasósarnir, komist þeir til valda. Heita því; fullyrða það nánast. Og hann verður verndaður, kærleikurinn, af "sérstöku ofbeldiseftirliti" og "sjálfstæð(ri) lögreglu- og ákærustofnun.
Er ekki bara bjart framundan?
Höfundur er rithöfundur.