Kjósendur eða eigendur? Þar liggur efinn

Friðrik Eysteinsson
Reykjavik_Haskoli_Islands.jpg
Auglýsing

Mennta­mála­ráð­herra skipar rektor til fimm ára sam­kvæmt til­nefn­ingu háskóla­ráðs að und­an­gengnum kosn­ingum þar sem greidd atkvæði starfs­manna hafa 70% vægi en stúd­enta 30%.

Kosið var á milli þriggja rekt­ors­fram­bjóð­enda sl. mánu­dag en þar sem eng­inn fékk meiri­hluta greiddra atkvæða þarf að kjósa aftur nk. mánu­dag á milli þeirra tveggja sem fengu flest atkvæði.

Jón Atli Bene­dikts­son, aðstoð­ar­rektor vís­inda og kennslu, hlaut 48,9% atkvæða sl. mánu­dag, Guð­rún Nor­dal, for­stöðu­maður stofn­unar Árna Magn­ús­sonar í íslenskum fræðum 39,4% og Einar Stein­gríms­son 9,7%.

Auglýsing

En nú komum við að mark­aðs­fræð­un­um.





  1. Tengsl mark­aðs­stefnu og árang­urs?







Mark­hópar (rétt­ara væri boð­miðl­un­ar­hópar) Guð­rúnar og Jóns Atla voru fyrst og fremst starfs­menn Háskóla Íslands og stúd­entar ( = kjós­end­ur) en boð­miðl­un­ar­hópur Ein­ars fólkið í land­inu ( = eig­end­ur).

Mun­ur­inn á stað­færsl­unni (hvaða ímynd er verið að reyna að koma á fram­færi eða skapa) lá í meg­in­at­riðum í því að Einar lagði ekki síður áherslu á að nýta fjár­muni eig­end­anna betur en hinna tveggja í því að reyna, sem rekt­or, að fá meiri fjár­muni frá eig­end­unum til þess að bæta kjör og aðstæður kjós­enda. Hann lá líka í því að Einar kom með útfærðar til­lögur að breyt­ingum (eig­endum í hag) en hinir tveir (enda hefði það getað fælt frá­kjós­end­ur).

Í ljósi mis­mun­andi mark­aðs­stefnu (mark­hópar, stað­færsla) er þá nokkuð skrítið þó úrslit kosn­ing­anna hafi orðið þau sem komu á dag­inn?

Og nú æsast leik­ar.





  1. Tæki­færið og (end­ur)­stað­færslan?







Hvaða tæki­færi sér Guð­rún svo í seinni umferð­inni?

Jú, hún segir að það sé „...aug­ljóst að fólk vill breyt­ing­ar“ en sjálf hafði hún talað fyrir slíku með til­tölu­lega óljósum hætti í fyrri umferð­inni til þess vænt­an­lega að aðgreina sig aðeins frá Jóni Atla (sem fór mun var­legar í sak­irn­ar).

Og hverju ætlar Guð­rún þá að breyta varð­andi mark­aðs­stefn­una til að nýta sér þetta tæki­færi?

Mark­hóp­arnir eru þeir sömu - starfs­menn og stúd­ent­ar. Áherslan hjá Jóni er á þá sem eru sáttir við hlut­ina eins og þeir eru en hjá Guð­rúnu frekar á þá sem eru það ekki.

En stað­færslan hefur breyst ( = end­urstað­færsla) enda keppi­naut­ur­inn nú bara einn.

Hver er þá mun­ur­inn á þeim tveim­ur? „Hann hefur verið aðstoð­ar­rektor í sex ár en ég er að koma utan­frá.“

Með öðrum orðum Jón Atli hafi starfað í stjórn­sýslu Háskóla Íslands (sé hluti af núver­andi valda­stétt og beri þannig ábyrgð á ástandi mála) en ekki hún. Þess vegna hafi hún, „önnur tæki­færi til þess að taka til hend­inni og breyta hlutum en sitj­andi aðstoð­ar­rekt­or. Og öllum ætti að vera ljóst að breyt­inga er þörf.“

Hvor­ugt hefur þó lagt fram nákvæmar til­lögur um breyt­ingar enda gæti slíkt fælt kjós­endur frá þeim.

Í mark­aðs­fræð­unum væri þetta kallað aðgrein­andi þættir (Points of Differ­ence) og er annar helm­ing­ur­inn í stað­færslu.

Hinn helm­ingur stað­færsl­unn­ar, sam­eig­in­legir þættir (Points of Parity) hefur hins vegar ekki breyst.

Stærsta verk­efn­ið, að mati beggja er að tryggja fjár­mögnun skól­ans (sem rektor getur síðan ekki haft nema tak­mörkuð áhrif á því ákvörð­unin liggur að mestu hjá Alþing­i). Svo eru ýmis atriði tengd kjörum og aðstöðu starfs­manna og nem­enda.

Með öðrum orðum sé stærsta verk­efni rekt­ors að fá meira fé frá eig­end­un­um. Ekki orð um að nýta fjár­muni þeirra bet­ur.

Enda eru eig­end­urnir ekki á kjör­skrá!

Höf­undur er rekstr­ar­hag­fræð­ing­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None