Liðhlaupar og kosningar

Guðrún Pétursdóttir skrifar um ákvörðun Birgir Þórarinssonar að skipta um flokk innan við tveimur vikum eftir kosningar.

Auglýsing

Ég hef verið ansi hugsi und­an­farna daga og það hefur rifj­ast upp fyrir mér, að þegar ég sótti um skóla­vist í Oxford fyrir mörgum árum, var ein spurn­ingin á inn­töku­próf­inu þessi: Hvor er spillt­ari, sá sem býður mútur eða hinn sem þiggur þær? Svarið var ekki aug­ljóst.

Það er heldur ekki aug­ljóst svarið við spurn­ing­unni um hvor er spillt­ari, lið­hlaup­inn sem svíkur kjós­endur sína áður en blekið er þornað á kjör­bréfi hans og áður en þing hefur svo mikið sem verið kallað sam­an, eða hinn sem býður lið­hlaupann vel­kom­inn í sinn flokk.

Sér­fræð­ingar hafa spek­úlerað mikið um þennan gern­ing og farið út um víðan völl. Þing­menn hafa líka lagt orð í belg um rétt­mæti þess að þing­maður skipti um hest sýn­ist honum svo. Það má færa rök fyrir rétt­mæti þess, ef upp kemur óyf­ir­stíg­an­legur mál­efna­á­grein­ingur á kjör­tíma­bil­inu. En því er ekki að heilsa í þetta sinn. Mér finnst sá gern­ingur sem nú er til umræðu vera alvar­leg og hættu­leg aðför að trausti kjós­enda á fram­boðum og kosn­ing­um. Þar með er vegið að rótum lýð­ræð­is­ins. Það er ekk­ert smá­ræð­i. 

Auglýsing
Ætlar Alþingi virki­lega að láta það við­gang­ast að menn bjóði sig fram fyrir ákveð­inn flokk og heyi kosn­inga­bar­áttu á hans veg­um, en stingi svo af til ann­ars flokks um leið og taln­ingu lýk­ur?  Hvers konar fram­koma er þetta við kjós­end­ur? Getum við nokkurn tím­ann treyst neinum fram­bjóð­endum fram­ar, ef það er látið við­gang­ast að menn beiti þeim brögðum að bjóða sig fram fyrir þann flokk sem er lík­leg­astur til árang­urs fyrir þá sjálfa, en stingi svo umsvifa­laust af yfir í allt annan flokk að kosn­ingum lokn­um, sem tekur þeim opnum örmum eins og ekk­ert sé!? Þetta er með slíkum ein­dæm­um, að lög ná ekki yfir það. Senni­lega hefur engum dottið í hug að svona lagað gæti gerst.

Ég furða mig á lág­kúru Sjálf­stæð­is­flokks­ins að taka við þessum ósann­sögla lið­hlaupa. Það er ekki eins og hegðun og mál­flutn­ingur Birgis Þór­ar­ins­sonar séu lík­leg til auka veg flokks­ins, - þvert á móti. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ger­ist sam­sekur í ömur­legum gern­ingi og verður ábyrgur fyrir mál­flutn­ingi Birgis Þór­ar­ins­son­ar, sem til þessa hefur á Alþingi afneitað vís­indum og verið drag­bítur á mannúð og mann­rétt­indi. Hann er óvenju­lega forn­eskju­legur í skoð­unum – ekki beint það sem Sjálf­stæð­is­flokk­inn vant­ar. Birgir virð­ist halda að hann sigli undir seglum kristn­inn­ar, en það sem til hans hefur sést und­an­farna daga getur varla talist hákrist­ið: vís­vit­andi svik við kjós­endur og síðan ósann­sögli um stuðn­ing vara­þing­manns síns. Svona fengur hefur til þessa kall­ast ódráttur í minni sveit.

Ég heyri Jón Helga­son rymja sinni rámu rödd:

Ef allt þetta fólk fær í gull­sölum himn­anna gist

sem gerir sér mat úr að nugga sér utan í Krist,

þá hlýtur sú spurn­ing að vakna hvort mik­ils sé misst

ef maður að síð­ustu lendir í annarri vist.

Höf­undur er pró­fessor emerit­us.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar