Montrassar

Úlfar Þormóðsson fjallar um „snillinga“ og montrassa í aðsendri grein.

Auglýsing

Ég var að hlusta á Rík­is­út­varp­ið. Það var verið að ræða við sperrirófu og ég fór hugsa um flug. Og montrassa. Vel þekktur ferða­mála­fröm­uður stofn­aði ferða­skrif­stofu og flug­fé­lag hér­lendis og erlend­is. Svo kom í ljós að eitt­hvað af þessum rekstri stóð ekki undir kostn­aði, safn­aði skuldum og fór á haus­inn. Fröm­uð­ur­inn gat ekki greitt hund­ruðir millj­óna þeim sem hann skuld­aði. Hann átti ekki pen­ing til þess. Lána­drottn­arnir og hlut­haf­arnir töp­uðu. En mitt í gjald­þrota­skipt­unum hófst fröm­uð­ur­inn handa við að stofna önnur félög. Eins félög og þau sem fóru á haus­inn. Millj­óna­fé­lög. Og nú býður hann land­anum ferðir með nýja félag­inu suður í höfin á hag­stæðu verði og á bara nóg af pen­ing­um.

Öðrum manni, sem virt­ist byrja sinn flug­rekstur af ákafa hug­sjóna­manns­ins, gekk ljóm­andi vel um hríð. Sam­tímis breytti vel­gengnin honum í sperrirófu og hann fór að eyða um efni fram. Langt um efni fram. Hann stefndi hratt og örugg­lega í gjald­þrot með flug­fé­lagið sem lauk sínum líf­dögum með skuldum við starfs­menn, banka og hlut­hafa upp á mörg hund­ruð millj­ón­ir. Svo leið lít­ill tími og sperrirófan fór að selja stór­hýsi sem hann átti, jarðir og bygg­inga­rétt. Og brosir og býður meira. Það er nefni­lega nóg til.

Auglýsing

Og nú hefur enn einn snill­ing­ur­inn tekið sig til og dillar montrass­inum framan í okk­ur. Hann býður hverjum sem er að koma með millj­ónir til sín, leggja í púkkið og ger­ast hlut­haf­ar; taka þátt í gróð­anum sem hann ætlar að skapa. Í því sam­bandi skiptir engu þótt einn stjórn­ar­maður í félag­inu sé þegar far­inn að selja sín bréf því allt gengur svo ljóm­andi vel. Og hann er sko ekki aldeilis að fara á haus­inn með firmað sem sést best á því að félagið hefur efni á því að bjóða í leik og Lund­ún­ar­ferð fyrir 6.500 krón­ur, takk!

Þegar ég slökkti á útvarp­inu velt­ust fyrir mér tvær spurn­ing­ar: Hvenær fer mað­ur­inn á hausinn? Fer mað­ur­inn kannski aldrei á hausinn?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar