Mun Framsókn „Leiðrétta“ unga leigjendur í næstu kosningum?

sigmundur.jpg
Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er ekki í öfunds­verðri stöðu um þessar mund­ir.

Eftir ótrú­legan kosn­ing­ar­sigur í Alþing­is­kosn­ing­unum 2013, þar sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent atkvæða og 19 þing­menn, hefur fylgið hríð­fall­ið. Innan flokks­ins hafði lyk­il­fólk ekki áhyggjur af því framan af kjör­tíma­bili. Það var visst um að fylgið myndi skila sér aftur þegar stóru kosn­inga­lof­orð flokks­ins, allt að 80 millj­arða króna milli­færsla úr rík­is­sjóði til til­vilj­un­ar­kennds hóps lán­tak­enda undir merkjum „Leið­rétt­ing­ar­inn­ar“ og nauð­beyg­ing hrægamma­sjóð­anna, yrðu að veru­leika.

Það var því mikið áfall þegar fram­kvæmd „Leið­rétt­ing­ar­inn­ar“, sem kynnt var í nóv­em­ber 2014, skil­aði flokknum engri fylg­is­aukn­ingu. Þvert á móti féll fylgið skarpt í kjöl­far­ið. Í síð­ustu könnun Gallup mæld­ist það ein­ungis 8,9 pró­sent og hefur ekki mælst lægra síðan að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var kjör­inn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í byrjun árs 2009.

Auglýsing

Fram­sókn­ar­menn örvæntu þó ekki og hófu að horfa á næstu stóru kynn­ingu í Hörpu, um áætlun stjórn­valda við losun hafta. Hún fór fram í upp­hafi þessa mán­aðar og eru flestir á þeirri skoðun að áætl­unin sé afar góð lausn fyrir alla hlut­að­eig­andi, sér­stak­lega í ljósi þess að hún felur í sér sam­komu­lag við „hrægammana“.

Allir þing­menn flokks­ins mættu í Hörpu til að sjá þessu risa­máli sínu siglt í höfn og fylgj­ast með hann­aðri kynn­ing­unni sem var til þess fall­inn að láta lausn­ina ríma við gíf­ur­yrði Fram­sókn­ar­manna. Í kjöl­far hennar hafa þing­menn flokks­ins verið dug­legir að túlka nið­ur­stöð­una sínum flokki til tekna. Þing­menn­irnir Þór­unn Egils­dóttir og Elsa Lára Arn­ar­dótt­ir, vara­þing­mað­urin Hjálmar Bogi Haf­liða­son og ráð­herr­ann Gunnar Bragi Sveins­son hafa öll skrifað greinar í blöð til að mæra rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs fyrir lausn­ina. Þing­mað­ur­inn Vig­dís Hauks­dóttir bætti um betur í útvarps­við­tali og sagði   Sig­mund Davíð lík­lega vera „verð­mætasta stjórn­mála­mann lands­ins frá lýð­veld­is­stofn­un“.

Síðan þá hafa Fram­sókn­ar­menn beðið spenntir eftir fyrstu skoð­ana­könn­un­inni sem fram­kvæmd er eftir kynn­ing­una. Hún birt­ist í Frétta­blað­inu fyrir helgi, og ljóst að von­brigðin í her­búðum Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa verið mik­il. Fylgið hækk­aði ekk­ert. Þvert á móti dróst það saman milli kann­ana og mæld­ist ein­ungis 8,5 pró­sent. Það myndi ein­ungis skila flokknum fimm þing­mönnum og allir ofan­greindir þing­menn utan Gunn­ars Braga myndu missa sæti sitt.

Í Bak­her­berg­inu hefur mikið verið rætt um að ekki megi van­meta getu Fram­sókn­ar­flokks­ins til að stela kosn­ingum og láta þær fara fram á sínum for­send­um. Það hafi flokk­ur­inn marg­sinnis gert áður með stór­kost­legum lof­orðum um ein­faldar lausnir á flóknum vanda­mál­u­m. Í Bak­her­berg­inu er því spáð að næsta lof­orð muni snú­ast um stóra milli­færslu á pen­ingum úr rík­is­sjóði til yngsta kjós­enda­hóps­ins, fólks undir þrí­tugu. Þar sé flokks­holl­usta lang­minnst og flökku­fylgið því lang­mest.

Ljóst sé að samn­ingar við kröfu­hafa munu lækka skuldir rík­is­ins mik­ið, og þar af leið­andi fjár­magns­kostnað þess. Þá tugi millj­arða króna sem komi til árlega vegna þessa megi nota til að „leið­rétta“ stöðu þeirra sem telja sig hafa verið skilda eftir í leið­rétt­inga­súpu síð­ustu ára, nefni­lega ungt fólk á leigu­mark­aði. Til að und­ir­strika að flokk­ur­inn muni standa við lof­orðið verða spil­aðar kosn­inga­aug­lýs­ingar með upp­tökum af öllum kynn­ing­unum sem haldnar gafa verið í Hörpu á kjör­tíma­bil­inu. Tón­inn verði að Fram­sókn standi við það sem flokk­ur­inn lof­ar.

Svo er bara spurn­ing um hvort að atkvæði unga fólks­ins séu til sölu á sama hátt og þeirra sem kusu Fram­sókn­ar­flokk­inn vegna nið­ur­greiðslu á verð­tryggðum hús­næð­is­lán­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None