Munu laun Birnu Einarsdóttur verða lægri en laun forsætisráðherra?

Islandsbanki_Birna_Fridrik_.jpg
Auglýsing

Það hefur vart farið fram­hjá neinum að íslenska ríkið er að öllum lík­indum að fara að eign­ast allt hlutafé í Íslands­banka. Tíð­indin komu að ein­hverju leyti á óvart og síð­ustu daga hefur verið haft eftir Birnu Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra Íslands­banka, að hún líti á mögu­lega rík­i­s­eigu sem tíma­bundið ástand. Bank­inn hafi verið í sölu­ferli og áhugi sé á því að eign­ast hann erlendis frá.

Það vakna hins vegar ýmsar spurn­ingar um hvað rík­is­eiga á Íslands­banka muni þýða, jafn­vel þótt hún sé tíma­bund­ið. Þannig voru laun Birnu Ein­ars­dóttur 3,2 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra auk þess sem hún fékk 4,8 millj­ónir króna í bón­us­greiðslu. Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, var hins vegar „ein­ung­is“ með 1,5 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun auk þess sem hann fékk 175 þús­und krínur á mán­uði í hluta­bréfatengdar greiðsl­ur. Því munar rúm­lega 20 millj­ónum króna á árs­launum Birnu og Stein­þórs auk þess sem bón­us­greiðslur hennar eru mun hærri.

Ástæðan fyrir þessum mikla launa­mun hjá banka­stjór­unum er sú að íslenska ríkið er aðal­eig­andi Lands­bank­ans og því falla starfs­kjör banka­stjór­ans undir lög um kjara­ráð, sem sett voru eftir banka­hrun. Sam­kvæmt þeim mega þeir sem undir ráðið heyra ekki vera með hærri laun en for­sæt­is­ráð­herra.

Auglýsing

Ef Íslands­banki verður að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins þá ætti hið sama að gilda um laun Birnu.

Auk þess var greint frá því í júlí að Birna, fram­kvæmda­stjórar og stjórn­ar­menn Íslands­banka, hefðu farið fram á kaupauka í tengslum við nauða­samn­inga og sölu bank­ans. Vildi hóp­ur­inn fá allt að eitt pró­sent hlut í bank­an­um, sam­kvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins um mál­ið. Virði þess hlutar er rúm­lega tveir millj­arðar króna. Ljóst er að þær kröfur hljóti að vera út af borð­inu ef Íslands­banki endar í fangi rík­is­ins því varla fer það að gefa stjórn­endum nokkra millj­arða króna eign.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None