Nýjan rektor - hugleiðing vegna rektorskjörs 2015

Reykjavik_Haskoli_Islands.jpg
Auglýsing

Lög Háskóla Íslands gera ráð fyrir að hver rektor sitji aðeins tvö kjör­tíma­bil, eða 10 ár.  Það kemur ekki til af engu, heldur af reynslu far­sælla stofn­ana og fyr­ir­tækja um að hollt sé að skipta um stjórn­endur reglu­lega.

Okkur stendur til boða að velja milli tveggja góðra vís­inda­manna og reyndra stjórn­enda í rekt­ors­kjör­inu á mánu­dag. Annar hefur verið við völd sem nán­asti aðstoð­ar­maður rekt­ors síð­asta ára­tug og vara­rektor síð­asta kjör­tíma­bil. Hinn, Guð­rún Nor­dal, hefur und­an­farin ár stýrt einni mik­il­væg­ustu menn­ing­ar­stofnun þjóð­ar­inn­ar, Árna­stofn­un, og verið í for­mennsku þeirra stofn­ana sem fjár­magna vís­indi bæði hér á landi (vís­inda­nefnd Vís­inda- og tækni­ráðs) og á Norð­ur­löndum (Nor­d­For­sk). Ég ætla að kjósa nýja rekt­or­inn, þann sem kemur með ferska sýn að Háskól­an­um.

Guð­rún Nor­dal er víð­sýn kona sem nær til allra, hlustar vand­lega og nær fólki sam­an. Sem for­maður vís­inda­nefndar hefur hún öðl­ast skiln­ing á þörfum allra greina vís­inda­sam­fé­lags­ins. Hún hefur talað máli vís­inda við stjórn­völd með þeim árangri að fjár­mögnun rann­sókna hefur verið stór­auk­in. Í góðri sam­vinnu ólíkra hags­muna­hópa leiddi hún mik­il­vægar umbætur á öllu verk­lagi við mat og úthlutun rann­sókn­ar­styrkja. Hún á gott með að vinna með ólíku fólki og leiða það til far­sællar nið­ur­stöðu.

Auglýsing

Umræður lið­inna vikna hafa sann­ar­lega leitt í ljós að það þarf margt að laga í Háskól­an­um. Ég ætla ekki að rekja það hér, enda of langt mál upp að telja.

En ég treysti Guð­rúnu til að leiða þær umbætur sem þarf að gera á Háskóla Íslands til að nem­endur og starfs­menn fái notið sín í starfi og skól­inn geti sinnt sínu mik­il­væga hlut­verki.

Háskól­inn er langstærsta mennta- og rann­sókn­ar­stofnun lands­ins – á margan hátt kjöl­festa menn­ingar hér á land­i.  Guð­rún hefur sett fram skýra fram­tíð­ar­sýn um háskóla sem sinnir íslenskri þjóð um leið og hann situr til borðs með bestu vís­inda­mönnum alþjóða­sam­fé­lags­ins. Við erum háskóli í örsmáu hag­kerfi, en ef rétt er á spöðum haldið getum við tekið fullan þátt í alþjóð­legu vís­inda­starfi í miklu meira mæli en nú er. Þegar taka sterkir rann­sókn­ar­hópar þátt í alþjóð­legu sam­starfi og sumum hefur tek­ist að afla gríð­ar­mik­illa fjár­muna til rann­sókna erlendis frá. Þessa sókn er hægt að stór­auka með réttum stuðn­ingi við fleiri rann­sókn­ar­hópa.

Guð­rún Nor­dal sér tæki­færi Íslands og skyldur til að takast á við þau stóru vand­mál sem mann­kynið stendur frammi fyr­ir.  Henni er ljóst mik­il­vægi þess að leiða saman sér­fræð­inga á mörgum sviðum og mun vinna að því að skipu­lag Háskól­ans standi ekki í vegi fyrir þver­fræði­legri sam­vinnu. Breiður skiln­ingur hennar á rann­sóknum mun auð­velda henni þetta starf.

Fyrst og fremst hefur Guð­rún Nor­dal fram­sýni, rétt­sýni og hjarta­lag far­sæls leið­toga.  Ég ætla að kjósa hana til rekt­ors þann 20. apríl og hvet alla til að gera það sama.

Höf­undur er dokt­or­snemi í iðn­að­ar­verk­fræði við Háskóla Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None