Óbundin af fortíðinni

Gísli Sigurðsson og Torfi H. Tulinius
14128538452_5c89c225a2_z.jpg
Auglýsing

Háskóli Íslands er ein mik­il­væg­asta sam­eign Íslend­inga, stofn­aður á ald­ar­af­mæli Jóns Sig­urðs­son­ar, og byggður upp með fram­lögum borg­ar­anna, í gegnum skatt­kerfi og happ­drætti. Á sama hátt og forn­bók­mennt­irn­ar, tungan og yfir­ráð yfir fiski­mið­un­um, voru það starf og fórnir fyrri kyn­slóða sem skópu Háskól­ann vegna þess að þær trúðu rétti­lega að í honum fælist fjöregg gæfu­ríkrar og grósku­mik­illar fram­tíð­ar.

Um langt ára­bil hafa starfs­fólk og nem­endur skól­ans kosið sér rektor til að stýra starfi sínu. Það er vegna þess að Háskóli Íslands er allt annað en fyr­ir­tæki eða venju­leg rík­is­stofn­un. Hann er sam­fé­lag jafn­ingja sem vinna að frjálsri sköpun og miðlun þekk­ing­ar. Þannig speglar hann lýð­ræð­is­hug­sjón Íslend­inga og er á vissan hátt hold­gerv­ingur henn­ar.

Kosn­inga­bar­áttan und­an­farnar vikur hefur verið til fyr­ir­myndar að því leyti að tek­ist hefur verið á um hug­myndir og leiðir til að hlúa að, auðga og styrkja þetta fjöregg þjóð­ar­inn­ar. Báráttan hefur verið drengi­leg og hafa þeir sem þetta rita ekki orðið varir við að veist væri að per­sónum fram­bjóð­enda enda engin ástæða til. Öll eru þau sóma­fólk.

Auglýsing

Nú er komið að seinni umferð­inni og kjósa þarf milli tveggja ein­stak­linga sem eiga margt sam­eig­in­legt. Bæði eru fram­úr­skar­andi vís­inda­menn. Jón Atli er verk­fræð­ingur sem hefur birt fjöl­margar vís­inda­greinar á sviði þar sem hann hefur verið leið­andi og nýtur alþjóð­legrar virð­ing­ar. Guð­rún er íslensku­fræð­ingur sem hef­ur, auk umfangs­mik­illa greina­skrifa, dregið saman braut­ryðj­enda­rann­sóknir sínar í tveimur bókum frá virtum erlendum háskólafor­lög­um: um sið­ferði á Sturl­unga­öld og drótt­kvæði. Nor­rænar mið­alda­bók­menntir eru alþjóð­legt rann­sókna­svið þar sem Guð­rún Nor­dal nýtur mik­illar við­ur­kenn­ingar og bók hennar um drótt­kvæðin frá 2001 breytti að veru­legu leyti þeim grunni sem drótt­kvæða­rann­sóknir stóðu á enda hefur hefur hún und­an­farin ár verið í for­ystu langstærsta alþjóð­lega rann­sókn­ar­verk­efn­is­ins á þessu sviði, heild­ar­út­gáfu drótt­kvæð­anna. Báðir fram­bjóð­end­urnir hafa látið til sín taka á vett­vangi stjórn­unar og stýr­ingar á vís­inda­starfi. Guð­rún hefur um ára­bil tekið þátt í alþjóð­legu vís­inda­sam­starfi og leitt starf Vís­inda- og tækni­ráðs sem mótar vís­inda­stefnu stjórn­valda og úthlutar mik­il­vægum fjár­munum til rann­sókna. Jón Atli var for­maður vís­inda­nefndar Háskóla­ráðs í rekt­or­s­tíð Páls Skúla­sonar og hefur verið aðstoð­ar­rektor kennslu og vís­inda í tíð núver­andi rekt­ors Krist­ínar Ing­ólfs­dóttur frá 2005.

Báðir fram­bjóð­endur búa því yfir þeirri reynslu, þekk­ingu og skiln­ingi á vís­inda­starfi og miðlun þekk­ingar sem gera þau hæf til að stýra Háskól­an­um. Mun­ur­inn á þeim felst fyrst og fremst í því að Jón Atli hefur komið beint að stjórnun skól­ans und­an­far­inn ára­tug en Guð­rún ekki.

Þó margt hafi tek­ist vel í stjórn skól­ans und­an­farin ár, er margt annað sem þarfn­ast lag­fær­ing­ar. Ekki hefur tek­ist að fá stjórn­völd til að rétta við fjár­hag skól­ans. Álag á starfs­fólki hefur auk­ist til muna og komið er að þol­mörk­um. Sam­hliða því hefur kerf­is­bundið verið dregið úr þátt­töku starfs­manna í sam­eig­in­legri ákvarð­ana­töku um mál­efni skól­ans, en það stríðir gegn lýð­ræð­is­hefð Háskól­ans. Við leyfum okkur að trúa því að þessi lýð­ræð­is­hefð sé starfs­mönnum og stúd­entum hjart­fólg­in.

Nýr rektor Háskóli Íslands þarf því að vega og meta það sem gert hefur verið á liðnum árum með hags­muni skól­ans alls í huga. Hann má ekki vera bund­inn af þátt­töku sinni í ákvörð­unum sem hafa ekki hafa allar reynst vel. Því teljum við að hags­munir Háskól­ans og allra þeirra sem unna hag hans, þ.e. þjóð­ar­innar allr­ar, séu best tryggðir með nýrri for­ystu og styðjum Guð­rúnu Nor­dal til rekt­ors.

Höf­undar eru ­pró­fess­orar við Háskóla Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None