Opið bréf til næstu ríkisstjórnar

Vignir Árnason
14097534298_f246440b68_z.jpg
Auglýsing

Þegar ég fyrst hófst handa við að setja saman þetta bréf, ætl­aði ég að orða það almennt og beina orðum mínum til allra stjórn­mála­manna og núver­andi rík­is­stjórn­ar. Síðan þegar ég hugs­aði um hver myndi eig­in­lega lesa það og taka það til sín, datt mér eng­inn í hug. Því hef ég ákveðið að beina orðum mínum til þeirra stjórn­valda sem munu taka við í fram­tíð­inni. Þetta hef ég ákveð­ið, því ég tel litlar líkur á því að núver­andi stjórn­völd hlusti á gagn­rýni í ljósi nýlið­inna atburða. Mér þykir það mið­ur. Ég fagna því hins­vegar ef ein­hverjir núver­andi stjórn­ar­liðar taka þessi orð til sín.

Þegar þetta er skrifað er ég búsettur erlendis vegna per­sónu­legra aðstæðna og fylgist því minna með fréttum og umræð­unni heima en ella. Það sem ég heyri og les, hryggir mig vegna þeirrar svart­sýni og von­leysis sem birt­ist þar. Skilj­an­lega blasa við mörg vanda­mál og margt er að hægt að bæta. Því tel ég það ótrú­legt að það sé ekki gert. Þrátt fyrir allar þær auð­lindir sem við eigum og þrátt fyrir öll þau tæki­færi sem við gætum skap­að, er óbreytt ástand stað­reynd­in.

Auglýsing


Fólk mun fara



Óbreytt ástand leiðir ein­göngu til þess að fleira fólk tekur sig upp og fer. Fólk sem hefur ekki færi á að fá hús­næði við hæfi, getur ekki fundið vinnu við hæfi og á jafn­vel í erf­ið­leikum með að borga fyrir mat og aðrar nauð­synjar mun fara. Enda mun það spyrja sig hvort að það sé ekki til eitt­hvað betra ann­ars stað­ar. Það er ekki erfitt að kom­ast að svar­inu. Víð­ast hvar ann­ars staðar í Evr­ópu og utan henn­ar, má finna ódýr­ari hús­næði, hag­stæð­ara vöru­verð og meiri fjöl­breytni í störf­um. Íslend­inga stendur öll Evr­ópa til boða, og af minni reynslu er þar hvorki hung­ursneyð né alvar­legur skortur á nauð­synj­um.



Fyrir flestum er það ein­falt hvað verður að ger­ast svo að fólk sjái ein­hverja fram­tíð á Íslandi; það þarf að geta fjár­fest í hús­næði eða leigt hús­næði svo það hafi þak yfir höf­uð­ið. Það þarf að fá vinnu með mann­sæm­andi laun sem hæfir menntun þess og reynslu. Svo verða inn­viðir sam­fé­lags­ins, mennta­kerfi, heil­brigð­is­kerfi, stjórn­sýsla og dóms­kerfi, að virka og veita lág­marks þjón­ustu. Sé þetta upp­fyllt, get ég séð mig búa á Íslandi til fram­búð­ar. Ég er jafn­framt viss um að fleiri taki undir það. Ef ekki mun ég og aðrir velkj­ast í vafa áfram: vera eða fara. Þegar loks eitt­hvað hefur verið gert, gæti það hins­vegar verið of seint. Því skora ég á næstu rík­is­stjórn að bregð­ast ekki og gera loks eitt­hvað í þessum mál­um.



Höf­undur er rit­höf­und­ur, íslensku- og spænsku­fræð­ing­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None