Reykjavíkurborg á næsta leik - „Aðför“ að einkabílnum er skynsamleg

14264637819_60c97fb948_b.jpg
Auglýsing

Það voru ánægju­leg tíð­indi frá Nor­egi, nánar til­tekið frá höf­uð­borg­inni Osló, sem bár­ust í dag. Einka­bílar verða bann­aðir í mið­borg­inni árið 2019 til þess að draga úr meng­un. Þeir sem ferð­ast um borg­ina í almenn­ings­sam­göng­um, sam­floti, fót­gang­andi og hjólandi verða settir í for­gang fram yfir einka­bíla. Þetta kemur fram í stefnu­yf­ir­lýs­ingu nýs meiri­hluta borg­ar­stjórn­ar­inn­ar, en í fyrsta sinn eru Græn­ingjar í meiri­hluta borg­ar­stjórn­ar.

Þetta er umfangs­mikil stefnu­breyt­ing, og ljóst að hún getur verið öðrum borgum og borg­ar­sam­fé­lögum fyr­ir­mynd. Sér­stak­lega eru það svæðin sem hafa yfir sér bíla­borg­ar­brag, eins og til dæmis Reykja­vík­ur­borg og höf­uð­borg­ar­svæð­ið, sem þurfa að taka sig á.

Fyrst hægt er að marka stefnu sem þessa í Osló er vel hægt að gera það hjá Reykja­vík­ur­borg. Ef slíkt yrði gert, yrði það mik­il­vægt fram­lag borg­ar­innar í sam­hengi þeirra miklu áskor­ana sem Ísland stendur frammi fyr­ir, en mark­mið um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 40 pró­sent fyrir árið 2030, miðað við árið 1990, hefur verið gert opin­bert. Fimmtán ár er stuttur tími og grípa þarf taf­ar­laust til viða­mik­illa aðgerða.

Auglýsing

Ljóst má vera að mik­ill þungi í þeim aðgerðum sem þarf að grípa til, þegar draga á úr meng­un, verður að vera á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar er flest fólk, mest umferð, mesta meng­unin og mesta óhag­ræðið í dag­legu lífi. Með skyn­sam­legum aðgerðum er hægt að ná miklum árangri. Þétt­ing byggðar er eitt atriði, sem mik­il­vægt er að horfa til, en það þarf að ganga mun lengra og gera hlut­ina hrað­ar.

Aðför að einka­bílnum - eins og það er stundum kallað þegar er verið að reyna að vinna gegn alltof mik­illi bíla­um­ferð - er skyn­sam­leg. Gísli Mart­einn Bald­urs­son, sem sum­ir, ekki síst flokks­bræður hans í Sjálf­stæð­is­flokkn­um, gerðu grín að fyrir að setja þetta mál á odd­inn í sinni fram­sýnu póli­tík sem borg­ar­full­trúi, fyrir mörgum árum síð­an, hafði rétt fyrir sér. Og nú er svo kom­ið, að aðgerð­ir, sem miða að því að gera eina borg­ar­sam­fé­lagið á Íslandi heilsu­sam­legra og hag­kvæmara, þola enga bið.

Óhag­ræðið og meng­unin sem fylgir bíla­borg­ar­bragnum er ígildi skuldar sem hvílir á íbú­um. Í til­felli Reykja­vík­ur­borgar og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þá eru skuld­irnar háar. Og það er eins með þær og allar aðrar skuld­ir; það kemur alltaf að skulda­dögum að lok­um. Reykja­vík­ur­borg ætti að taka þessi skyn­sam­legu skref í Osló sér til fyr­ir­mynd­ar, og taka frum­kvæðið í því breyta hlutum til betri veg­ar.

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None