Ríki og borg seldu Landsbankanum lóðina undir nýjar höfuðstöðvar

landsbankinn.jpg
Auglýsing

Uppi varð fótur og fit ­fyrr í júlí þegar greint var frá því að Lands­bank­inn ætl­aði að byggja nýjar höf­uð­stöðvar við Aust­ur­höfn í Reykja­vík. Margir hafa notað tæki­færið til að gagn­rýna áform­in, þar á meðal for­sæt­is­ráð­herr­ann Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Frosti Sig­ur­jóns­son og Vig­dís Hauks­dótt­ir, þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Elín Hirst og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Látum það liggja milli hluta hvað fólki finnst um áform rík­is­bank­ans. En margir láta eins og ákvörðun bank­ans sé ný af nál­inni og þessar upp­lýs­ingar komi á óvart. Í bak­her­berg­inu er bent á að það stand­ist bara ekki. Reyndar skal það tekið fram að for­sæt­is­ráð­herra hefur lengi talað gegn þessum áform­um, oftar en ekki á skipu­lags­legum for­send­um.

Greint hefur verið frá áformum Lands­bank­ans reglu­lega und­an­farin ár. Bank­inn átti auð­vitað lóð­ina fyrir hrun og ætl­aði sér þá að byggja nýjar höf­uð­stöðv­ar. Allir þekkja hvað varð um þau áform, og ríkið og borgin eign­uð­ust lóð­ina eftir hrun.

Auglýsing

Í byrjun árs 2012 greindi bank­inn frá því að hann ætl­aði sér að reisa nýjar höf­uð­stöðvar fyrir árið 2015. Bank­inn sagð­ist vilja gera það í mið­borg­inni. Í við­tali við Frétta­blaðið í jan­úar 2012 sagði Krist­ján Krist­jáns­son upp­lýs­inga­full­trúi að það kæmi allt eins til greina að horfa aftur til lóð­ar­innar sem bank­inn hafði átt fyrir hrun.

Árið 2013 hófst aftur umræða um það að Lands­bank­inn ætl­aði sér að byggja nýjar höf­uð­stöðv­ar, helst í mið­borg Reykja­vík­ur, og þá var lóðin við Hörpuna aftur komin inn í mynd­ina því bank­inn óskaði eftir við­ræðum við borg­ina um þá mögu­leika sem væru fyrir hendi.

Í fyrra keypti svo bank­inn lóð­ina við Hörpu undir vænt­an­legar höf­uð­stöðvar sínar og þá hófst þessi umræða á ný. Bank­inn keypti lóð­ina af Situs ehf. fyrir millj­arð króna, sem sam­svarar um 58 þús­und krónum á fer­metrann, sem verður að telj­ast góður díll á besta stað í borg­inni. Aðeins tvö til­boð bár­ust í lóð­ina, og til­boð bank­ans var 15 pró­sentum hærra en hitt.

En hverjir voru það líka sem seldu lóð­ina? Eign­ar­halds­fé­lagið Situs er í meiri­hluta­eigu rík­is­ins. Hinn hlut­ann á Reykja­vík­ur­borg.

Þrátt fyrir að nú stígi stjórn­mála­menn fram fullir af vand­læt­ingu þá er nákvæm­lega ekk­ert sem á að koma þeim á óvart í Lands­banka­mál­inu. Og það sem meira er: stjórn Situsar er póli­tískt skip­uð. Ef stjórn­ar­meiri­hlut­inn var svona mikið á móti því að Lands­bank­inn byggði höf­uð­stöðvar á þessum stað, af hverju var þá verið að selja bank­anum lóð­ina á slikk?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None