Rúmlega helmingur heimila með yfirdráttarlán

14547467290-e16ec4fa71-z.jpg
Auglýsing

Í febr­úar síð­ast­liðnum nýttu 51% heim­ila í Meniga hag­kerf­inu sér yfir­drátt­ar­lán. Það tæki heim­ilin að með­al­tali 17 daga að vinna sér fyrir þeirri upp­hæð sem þarf til að greiða upp yfir­drátt­ar­lán­in. Miðað við 12% vexti var með­al­kostn­að­ur­inn 46 þús­und krónur á ári.

Vaxta­kostn­aður 0,8% af tekjum



Með­al­staða á yfir­drátt­ar­lánum heim­il­anna yfir febr­ú­ar­mánuð var 383 þ. krón­ur. Hæst voru lánin jafnan í lok mán­að­ar, en meðal heim­ilið skuld­aði þá 503 þ. krón­ur.

Það er lík­legt að flesta langi til að losna við yfir­drátt­inn og vaxta­kostn­að­inn sem honum fylg­ir. Það er því áhuga­vert að skoða  hversu langan tíma þarf að vinna fyrir upp­hæð sem nægir til að greiða niður yfir­drátt­inn.

Heim­ili með yfir­drátt voru að með­al­tali með 455 þ. krónur í mán­að­ar­legar ráð­stöf­un­ar­tekjur á árinu 2014. Því tekur þau því 25 daga að greiða niður með­al­stöð­una (383 þ. krón­ur) og 45 daga að greiða niður hæstu stöðu yfir­dráttar (503 þ. krón­ur).

Auglýsing

Hlut­fall vaxta­kostn­aðar af ráð­stöf­un­ar­tekjum var að með­al­tali 0,8%. Heim­ilin gætu því aukið ráð­stöf­un­ar­tekjur sínar um 0,8% með því að greiða upp yfir­drátt­ar­lán­ið.

Lág­tekju­heim­ili vinna í 49 daga fyrir yfir­drætt­inum



Þegar heim­ilum er skipt í fjórð­unga eftir ráð­stöf­un­ar­tekjum kemur í ljós að notkun yfir­drátt­ar­heim­ilda er nokkuð svipuð á milli tekju­hópa. Tekju­lægsti fjórð­ung­ur­inn sker sig þó aðeins úr með lægsta hlut­fallið (46%).

Þegar með­al­staða reikn­inga er skoðuð kemur í ljós að yfir­drátt­ar­lánin hækka með hækk­andi tekj­um. Tekju­lægsti fjórð­ung­ur­inn er að með­al­tali með 326 þ.kr. í yfir­drátt en sá tekju­hæsti með 429 þ.kr..



Ef við skoðum aftur yfir­drátt­inn í sam­hengi við ráð­stöf­un­ar­tekjur eru nið­ur­stöð­urnar nokkuð ólíkar á milli tekju­hópanna. Það tæki heim­ilin í lægsta tekju­þrepi að með­al­tali 49 daga að vinna sér inn fyrir yfir­drætt­inum sínum á meðan heim­ilin í efsta tekju­fjórð­ungi næðu sama tak­marki á 16 dögum.

 

Hlut­fall vaxta­kostn­aðar af ráð­stöf­un­ar­tekjum sýnir svip­aða mynd þar sem tekju­lægsti fjórð­ung­ur­inn greiðir að með­al­tali 1,6% af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í vaxta­kostnað á meðan sá hæsti greiðir 0,5%.

 

Um grein­ing­una



Meniga vill leggja sitt af mörkum til að skapa opna umræðu um fjár­mál heim­il­anna. Vand­aðar upp­lýs­ingar um stöðu heim­il­ana geta gagn­ast heim­ilum sjálfum og haft jákvæð áhrif á aðgerðir opin­berra aðila. Þessi grein­ing er byggð á upp­lýs­ingum úr heim­il­is­bóka­halds­kerfi Meniga. Upp­lýs­ing­arnar eru byggðar á sam­an­dregnum upp­lýs­ingum frá 11 þús­und fjöl­skyldum sem nota Meniga til að fylgj­ast með fjár­málum sín­um.

Tekju­hóp­arnir eru fengnir með því að raða öllum heim­ilum eftir ráð­stöf­un­ar­tekjum árið 2014 og skipta þeim í fjóra jafn fjöl­menna hópa.  Á bak við hvern fjórð­ung eru því í kringum 2.700 heim­ili. Með­al­tekjur allra í úrtak­inu eru 455 þ. krónur á mán­uði. Ráð­stöf­un­ar­tekjur í lægsta hópnum eru 199 þ. krónur á mán­uði en 793 þ. krónur í þeim hæsta.

Ofan­greindar upp­lýs­ingar eru fengnar úr Meniga­hag­kerf­inu og unnar í sam­starfi Stofn­unar um fjár­mála­læsi og Meniga. Meniga hjálpar fólki að halda utan um fjár­mál heim­il­is­ins og er heild­ar­fjöldi not­enda um 40.000. Aldrei er unnið með per­sónu­grein­an­leg gögn í Meniga hag­kerf­inu. Nán­ari upp­lýs­ingar má finna á www.­fe.is og www.­meniga.­is.

Höf­undar starfa hjá grein­ing­ar­deild Meniga og Stofnun um fjár­mála­læsi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None