Sigur samstarfsins og rökræðunnar

bjarni
Auglýsing

Sú nið­ur­staða sem í dag var kynnt, er varðar slitabú bank­anna og und­an­þágu frá fjár­magns­höftum, er dæmi um afar jákvæð áhrif þess, þegar allir taka höndum saman og leiða mál til lykta. 



Víð­tækt sam­starf, og sam­staða, þegar mikið liggur við, er ávísun á að betri nið­ur­staða fáist að lok­um. 



Það hefur ekki farið fram­hjá neinum að sam­staða um hvernig skuli taka á greiðslu­jafn­að­ar­vand­anum sem snýr að slita­búum hinna föllnu banka, og hag­kerf­inu öllu um leið, hefur lítil verið á sviði stjórn­mál­anna. 



Bæði á opin­berum vett­vangi og bak við tjöld­in, hefur verið deilt um hvernig skuli haldið á málum og hvaða stefna tek­in. 

Þrátt fyrir deilur hefur sam­starfið um að leysa vand­ann haldið áfram. Stundum er það þannig, að ágrein­ingur og skoð­ana­skipti - jafn­vel átök - leiða að lokum til góðrar nið­ur­stöðu. Svo virð­ist vera um þessa nið­ur­stöðu sem kynnt var í dag.



Fram­kvæmda­hópur um afnám fjár­magns­hafta hefur nú skilað af sér góðu verki, þó enn eigi eftir að fram­kvæma þá áætlun sem skipu­lögð hefur ver­ið. Það sama á má segja um Seðla­banka Íslands og sér­fræð­inga stjórn­valda. 



Það ber að hrósa fyrir það sem vel er gert, og þessi tíma­mót sem kynnt voru í dag, eru enn eitt atriðið sem nefna miklum árangri í end­ur­reisn­ar­starf­inu til stað­fest­ing­ar. 



Lög­fræð­ing­ur­inn Lee Bucheit, sem var stjórn­völdum til ráð­gjaf­ar, hefur sagt að vafa­lítið muni end­ur­reisnin á Íslandi verða í fram­tíð­inni dæmi­saga um það, hvernig skuli taka á fjár­mála- og gjald­miðlakrísu. Það segir sitt um hvernig end­ur­reisnin hefur geng­ið, síð­ast­liðin sjö ár.







Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None