14084969012-548a854be2-z.jpg
Auglýsing

Um þessar mundir eru sjö ár frá því að alþjóð­legir fjár­mála­mark­aðir lok­uð­ust nær alveg fyrir íslenskan fjár­mála­mark­að, og þar með bróð­ur­part­inn af íslensku atvinnu­lífi. Þetta tíma­bil hófst með dramat­ískum dögum í mars og apríl 2008, þegar gengi krón­unnar féll um 11 pró­sent á nokkrum dög­um, og íslensku bank­arn­ir, Glitn­ir, Lands­bank­inn og Kaup­þing, hófu dauða­stríð sitt fyrir alvöru.

Sjö ár er langur tími, en í um sex og hálft ár, frá því í nóv­em­ber 2008, hafa verið í gildi lög um fjár­magns­höft sem stjórn­mála­menn komu á eftir að banka­kerfið hrundi eins og spila­borg á þremur dög­um, 7. til 9. októ­ber 2008. Ástæðan var sú að ótt­ast var að hrun bank­anna, og hið algjöra van­traust á krón­unni sem fylgdi, myndi ógna almanna­hags­munum og bók­staf­lega leggja fjár­hag ein­stak­linga og fyr­ir­tækja í rúst, með til­heyr­andi skelfi­legum afleið­ing­um.

Þetta er rifjað upp nú, þegar stjórn­völd eru að loks að þora því að stíga fyrstu skrefin í átt að því að opna dyrnar í átt að alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uð­um. Ekki liggur fyrir ennþá hversu stór rifan verður í upp­hafi, en aug­ljós­lega er langt í að höft verði afnumin að fullu, ef það ger­ist þá ein­hvern tím­ann.

Auglýsing

Í bak­her­berg­inu er rætt um, hversu merki­legt er að hugsa til þess, að þrjú einka­fyr­ir­tæki hafi getað verið jafn skað­leg hag­kerfi þjóðar eins og reyndin var með föllnu bank­anna þrjá, Kaup­þing, Glitni og Lands­bank­ann. Vitað er að hlutafé þeirra var að megn­inu til fjár­magnað af þeim sjálf­um, langt umfram leyfi­leg mörk, eins og frum­gögn frá þeim sjálfum sýna, en þessi hlið ten­ings­ins á tjón­inu er ekki svo oft rædd. Bank­arnir eru ennþá eins og krabba­mein á hag­kerf­inu, jafn­vel þó þeir séu ekk­ert annað en slita­bú, sex og hálfu ári eftir að þeir  hrundu, og óra­langt er enn í það að skað­inn sem rekja má til hruns og hörmu­lega óábyrgs rekst­urs þeirra, verði lag­að­ur.

Það er kannski ekki upp­lífg­andi að minna á þetta sjö ára afmæli ein­angr­un­ar, en við skulum vona að það líði ekki önnur sjö ár...

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None