Það er hægt að "Leiðrétta" skuldir en ekki leiðrétta laun

15995296141_b44e8b37fa_z.jpg
Auglýsing

Harðar umræður hafa átt sér stað á Alþingi vegna þeirrar stöðu sem er uppi í kjara­deilum opin­berra starfs­manna og rík­is­ins. Í dag svar­aði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fyr­ir­spurn frá Árna Páli Árna­syni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, um stöð­una á vinnu­mark­aði og verk­föll hjá hinu opin­bera.

Þar sagði Bjarni meðal annar að það væri ekki „hægt að gera leið­rétt­ingar tíu ár aftur í tím­ann. Það geta ekki allir enda­laust fengið leið­rétt­ingar gagn­vart ein­hverjum öðrum við­mið­un­ar­hóp­um“. ­Síðar í umræð­unni sagði Bjarni: „Lær­dóm­ur­inn sem við eigum að draga núna er sá að ef við höldum áfram á þeirri braut en ætlum okkur ekki um of í ein­hverjum leið­rétt­ingum og kjara­bótum í gegnum taxta­hækk­anir eða nafn­launa­hækk­anir þá getum við notið enn lægri vaxta og við­var­andi lágrar verð­bólg­u“.

Þessar leið­rétt­ingar sem Bjarni hafnar til að vernda okkur gagn­vart verð­bólgu eru ekki einu leið­rétt­ing­arnar sem hafa verið til umræðu und­an­farin ár. Skemmst er að minn­ast þess að eina stóra málið sem sitj­andi rík­is­stjórn hefur náð að klára á þessu kjör­tíma­bíli fékk nafnið „Leið­rétt­ing­in“ og snérist um að deila skaða­bótum með til­vilj­un­ar­kenndum hætti á þá sem höfðu verið með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009. "Leið­rétt­ing­in" var svo mikil leið­rétt­ing að rétt þótti að hafa hana með greini.

Auglýsing

Alls verður 80 millj­örðum króna skipt á milli þess hluta Íslend­inga sem til­heyra umræddum hóp. Skiptir þar engu hvað við­kom­andi er með í tekj­ur, hvað hann skuldar í hús­næð­is­lán eða hversu miklar eignir hann á. Allir fá milli­færslu úr rík­is­sjóði, sem hæst getur numið fjórum millj­ónum króna, svo lengi sem þeir voru með verð­tryggt hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009. Og „Leið­rétt­ing­in“ verndar Íslend­inga ekki fyrir verð­bólgu. Þvert á móti veldur hún verð­bólga, enda skapar hún ruðn­ings­á­hrif á fast­eigna­mark­aði. Á Íslandi er hús­næð­islið­ur­inn nefni­lega hluti af neyslu­vísi­töl­unni og því leiðir hækk­andi hús­næð­is­verð til­…hærri verð­bólgu.

Áður en „Leið­rétt­ing­in“, með stóru L-i, varð að veru­leika hafði hækk­andi hús­næð­is­verð reyndar leið­rétt það tap á eigin fé í hús­næði sem varð við verð­bólgu­skot áranna 2008 og 2009 hjá stórum hluta þeirra sem fengu pen­inga úr rík­is­sjóði, en það var ekki talið skipta máli. Skaða­bæt­urnar skyldi samt greiða.

Í aðdrag­anda hinna umfangs­miklu skulda­leið­rétt­inga var því ítrekað haldið fram af þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins að þeir sem voru með verð­tryggð lán hefðu „setið eft­ir“ þegar skuldir fyr­ir­tækja voru afskrif­að­ar, þegar yfir­skuld­sett heim­ili fengu að lækka skuldir sínar niður í 110 pró­sent af virði hús­næðis og ólög­leg geng­is­lán end­ur­reikn­uð.

Miðað við umræð­una á þingi að und­an­förnu er ljóst að það virð­ist í lagi að læknar fái miklar launa­hækk­an­ir, en að hjúkr­un­ar­fræð­ingar sitji eft­ir. Það virð­ist vera í lagi að hækka lág­marks­laun en láta öryrkja og líf­eyr­is­þega sitja eft­ir. Það virð­ist vera í lagi að gefa 80 millj­arða króna úr rík­is­sjóði, meðal ann­ars til fokríks eign­ar­fólks, en að láta opin­bera starfs­menn sitja eft­ir.

Í bak­her­berg­inu eru flestir sam­mála um að það sé skyn­sam­legt að laun hækki ekki fram yfir það sem hag­kerfið hefur efni á að greiða. Líkt og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði á þingi í dag þá geta ekki allir fengið enda­lausar leið­rétt­ing­ar. En menn verða að vera sam­kvæmir sjálfum sér. Það er ekki hægt að leið­rétta, og "Leið­rétta", bara suma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None