Þegar hægt er að ná til manna með fyrirgreiðslu og setja þá í stöðu til að skulda greiða

sdg.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra tjáði sig um vand­ræð­i Illuga Gunn­ars­son­ar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn hans, í tíu­fréttum RÚV í gær. Þar sagð­ist hann ekki skilja hvað Ill­ugi hefði gert rangt og að tengsl ráð­herr­ans við Orku Energy hefðu engin áhrif á setu Ill­uga í rík­is­stjórn­. Illugi neydd­ist til að selja íbúð sína vegna fjár­hags­vand­ræða og fékk vin sin, Hauk Harð­ar­son, til að kaupa hana og leigja sér síðan til baka. Haukur er stjórn­ar­for­maður Orku Energy, félags sem Ill­ugi starf­aði stutt­lega fyrir sem ráð­gjafi á árinu 2009 þegar hann var í leyfi frá þing­störf­um. Ill­ugi hefur legið undir ámæli um að hafa gert Hauki við­skipta­lega greiða með því að opna fyrir hann við­skipta­legar dyr í Kína sem ráð­herra.

Í bak­her­berg­inu þótti mörgum þessi orð for­sæt­is­ráð­herra athygl­is­verð í ljósi eigin orða í við­tali við Frétta­blaðið 21. febr­úar 2009, mán­uði eftir að hann var kjör­inn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. ­Fyr­ir­sögn við­tals­ins var: „Nán­ast nei­kvætt að eiga pen­inga“.

Þar sagði núver­andi for­sæt­is­ráð­herra meðal ann­ars að það að tengja hann við fólk sem ætti pen­inga, til dæmis kon­una hans, þætti nóg til að koma á hann höggi. Sig­mundur Davíð rakti síðan að fjöl­skylda eig­in­konu hans, Önnu S. Páls­dótt­ur, hefði byggt upp fyr­ir­tækið P. Sam­ú­els­son, umboðs­að­ila Toyota og fleiri bif­reiða­merkja á Íslandi, á 40 árum áður en það var selt til Magn­úsar Krist­ins­sonar í lok árs 2005 fyrir um sjö millj­arða króna. Fyr­ir­tækið hefði verið vel rekið og ekki hluti af loft­bólu­hag­kerf­inu sem var fyrir hrun. Þess vegna ætti eig­in­kona hans að vera stolt af sínum auði.

Auglýsing

Síðan sagði Sig­mundur Dav­íð: „Hvað mig varðar þá er þetta líka ágætt. Ég er í ágætu skjóli svo lengi sem konan mín gefst ekki upp á mér, ég fæ þá að borða og menn þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að það sé hægt að ná til mín með fyr­ir­greiðslu eða ég þurfi að setja mig í þá stöðu að ég skuldi mönnum greiða. Ég er því frjáls til að fylgja ein­göngu skoð­unum mínum og beita mér jafn­vel hart fyrir þeim.“

Sig­mundur Davíð hafði því þá skoðun að það væri ekki hægt að ná til hans „með fyr­ir­greiðslu eða ég þurfi að setja mig í þá stöðu að ég skuldi mönnum greiða“ vegna þess að hann ætti svo mikla pen­inga. En hann hefur ekki áhyggjur af því að pen­inga­leysi hafi mögu­lega sett Ill­uga, ráð­herra í rík­is­stjórn hans, í nákvæm­lega þá stöðu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None