Verbúðablús – Upp úr skotgröfunum!

Gunnar Alexander Ólafsson hvetur þorra stjórnarandstöðunnar til að leggja fram frumvarp um breytingu á stjórnarskrá sem setji inn auðlindaákvæði stjórnlagaráðs.

Auglýsing

Síð­ast lið­inn vetur var sýnd í sjón­varp­inu þátta­ser­í­an Ver­búðin sem naut gríð­ar­legra vin­sælda. Þætt­irnir fjöll­uðu um lífið í sjáv­ar­plássi á n­í­unda ára­tug síð­ustu aldar og hvaða breyt­ingar kvóta­kerfið hafði á lífið í sjáv­ar­plássi. Í þátt­unum var sýnd með ágætum hætti til­urð kvóta­kerf­is­ins í sjáv­ar­út­vegi og það sem síðar kom, fram­sal kvóta­heim­ilda milli útgerða. Þætt­irnir sýndu vel hvern­ig sveit­ar­fé­lög fóru illa út úr kvóta­við­skipt­um, þ.e. þegar kvót­inn var seldur úr byggð­ar­lag­in­u. 

Talið er að verð­mæti úthlut­aðra afla­heim­ilda sé um 1.200 millj­arðar. Útgerð­ar­fyr­ir­tæki greiða mjög lágar fjár­hæðir fyrir afnot að auð­lindum hafs­ins eða tæpa fimm millj­arða árið 2020 (0,4% af verð­mæti afla­heim­ilda), sem er svo lítið að afnota­gjaldið dugar ekki fyrir rekstri Fiski­stofu, Haf­rann­sókn­ar­stofu og Land­helg­is­gæslu svo dæmi séu nefnd. Fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri telur eðli­legt að útgerða­fyr­ir­tæki greiði á bil­inu 40-60 millj­arða á ári í gjald fyrir afnot af auð­lind­inni eða á bil­inu 3,3% til 5% af verð­mæti afla­heim­ilda. Á und­an­förnum árum hafa útgerð­ar­fyr­ir­tækin grætt gríð­ar­legar fjár­hæðir og greitt eig­endum sínum gríð­ar­leg­ar fjár­hæðir í arð.

Í ljósi ofan­greindra stað­reynda hvet ég þing­flokka Flokks fólks­ins, Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Við­reisnar að leggja fram frum­varp um breyt­ingu á stjórn­ar­skrá sem setji inn sett auð­linda­á­kvæði stjórn­ar­skrá sem er til­laga stjórn­laga­ráðs um nátt­úru­auð­lindir (34. gr.):

Auglýsing
„Auðlindir í nátt­úru Íslands, sem ekki eru í einka­eigu, eru sam­eig­in­leg og ævar­andi eign þjóð­ar­inn­ar. Eng­inn getur fengið auð­lind­irn­ar, eða rétt­indi tengd þeim, til eignar eða var­an­legra afnota og aldrei má selja þær eða veð­setja.

Til auð­linda í þjóð­ar­eign telj­ast nátt­úru­gæði, svo sem nytja­stofn­ar, aðrar auð­lindir hafs og hafs­botns innan íslenskrar lög­sögu og upp­sprettur vatns- og virkj­un­ar­rétt­inda, jarð­hita- og námu­rétt­inda. Með lögum má kveða á um þjóð­ar­eign á auð­lindum undir til­tek­inni dýpt frá yfir­borði jarð­ar.

Við nýt­ingu auð­lind­anna skal hafa sjálf­bæra þróun og almanna­hag að leið­ar­ljósi.

Stjórn­völd bera, ásamt þeim sem nýta auð­lind­irn­ar, ábyrgð á vernd þeirra. Stjórn­völd geta á grund­velli laga veitt leyfi til afnota eða hag­nýt­ingar auð­linda eða ann­arra tak­mark­aðra almanna­gæða, gegn fullu gjaldi og til til­tek­ins hóf­legs tíma í senn. Slík leyfi skal veita á jafn­ræð­is­grund­velli og þau leiða aldrei til eign­ar­réttar eða óaft­ur­kall­an­legs for­ræðis yfir auð­lind­un­um.“

Þessi breyt­ing væri í fullu sam­ræmi við þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una sem fram fór í októ­ber 2012, þar sem um 83% svör­uðu eft­ir­far­andi spurn­ingu ját­andi: „Vilt þú að í nýrri stjórn­ar­skrá verði nátt­úru­auð­lindir sem ekki eru í einka­eigu lýstar þjóð­ar­eign?“ 

Verði frum­varpið sam­þykkt þarf að rjúfa þing og boða til alþing­is­kosn­inga, þar sem nýtt þing þarf til að kjósa um nýjar breyt­ingar á stjórn­ar­skránni. Það er mín skoðun að við verðum að leyfa almenn­ingi að kjósa um auð­linda­á­kvæði stjórn­ar­skrá. Í því fel­st lýð­ræði.

Höf­undur er heilsu­hag­fræð­ing­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar