Verður ráðist í aðra skuldaleiðréttingu?

IMG-0231-1.jpg
Auglýsing

Allt lítur út fyrir að íslensk stjórn­völd ætli að ráð­ast í skref í átt að losun fjár­magns­hafta, og er því eðli­lega fagnað víð­ast hvar. Sú staða að vera með sam­fé­lag rígneglt í ströngum höftum í á sjö­unda ár er enda óþol­andi.

Sam­hliða gerð áætl­unar um þau skref sem eiga að stuðla að losun hafta eru íslensk stjórn­völd farin að huga að afleið­ingum þeirra. Það sést til að mynda vel í riti um stefnu í lána­málum rík­is­ins fyrir árin 2015-2018 sem gerð var opin­ber í byrjun þessa mán­að­ar. Þar er meðal ann­ars fjallað um verð­bólgu­á­hættu, sú áhætta að verð­bólga hækki verð­tryggðar skuldir rík­is­sjóðs ef hún eykst, en um síð­ustu ára­mót voru ein­ungis um 18 pró­sent af skuldum rík­is­sjóðs verð­tryggð­ar.

Í rit­inu segir að vægi verð­tryggðra skulda í heild­ar­lána­safni sé „mark­visst haft lítið því hætta er á auk­inni verð­bólgu ef krónan veik­ist við afnám gjald­eyr­is­hafta. Mik­il­vægt er þó að hafa í huga að rík­is­sjóður á margar verð­tryggðar eign­ir, svo sem lán sem veitt eru Lána­sjóði íslenskra náms­manna, sem dregur nokkuð úr verð­bólgu­á­hætt­u.“

Auglýsing

Ríkið er sem­sagt mark­visst að halda verð­tryggðum skuldum í lág­marki vegna hættu á veik­ingu krón­unnar við afnám hafta, en á þó líka ýmsar verð­tryggðar eignir sem vinna gegn þeirri áhættu. Verð­bætur vegna verð­bólgu þeirra eigna lenda á öðrum, til að mynda greið­endum lána hjá Lána­sjóði íslenskra láns­manna, öðru nafni almenn­ingi.

Í bak­her­bergj­unum hafa menn verið hugsi yfir þess­ari stra­tegíu rík­is­ins, þótt hún sé vissu­lega vit­ræn. Íslenskur almenn­ingur er nefni­lega með um 1.500 millj­arða króna í verð­tryggðum skuldum á bak­inu. Þær munu hækka ef verð­bólga eykst við losun hafta.

En það er auð­vitað komið for­dæmi fyrir því að greiða skaða­bætur fyrir verð­bólgu­skot með Leið­rétt­ing­unni. Er stefna rík­is­stjórn­ar­innar mögu­lega sú að ráð­ast í annan umgang hennar þegar höft hafa verið los­uð?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None