Við höfum val um framtíðina

Guðmundur Ragnarsson skrifar um ástæður þess að kjósendur ættu að kjósa Viðreisn.

Auglýsing

Það hefur aldrei verið mik­il­væg­ara en nú að kjós­endur leggi mat á stöðu sína og fram­tíð­ar­hags­muni fyrir kom­andi alþing­is­kosn­ing­ar. Það er svo mikið í húfi að við erum skyldug að axla ábyrgð og skoða vel stefnu­skrá stjórn­mála­flokk­anna áður en við greiðum atkvæði okkar í kjör­klef­an­um. Í stað þess að gleypa við gömlum end­ur­teknum kosn­inga­lof­orðum eða popúl­ískum töfra­lausnum verðum við að huga að fram­tíð­ar­lausnum sem virka. Sagar kennir okkur að skyndi­lausnir settar fram í aðdrag­anda kosn­inga hafa oft­ast endað hörmu­lega efna­hags­lega.

Við þurfum að spyrja okkur hvort við ætlum að kjósa flokka sem áfram boða stöð­ug­leika með krónu sem er ekk­ert annað en áfram­hald­andi stuðn­ingur við sér­hags­muna­hópana sem eru að eign­ast Ísland í skjóli fákeppni og gjald­mið­ils­ins. Hvort við viljum afhenda kom­andi kyn­slóðum sam­fé­lag hús­bænda og hjúa, því þangað stefnum við með sama áfram­hald­i. 

Fyr­ir­byggjum frek­ari skaða

Við verðum líka að spyrja okkur hvað erum við til­búin að fórna miklu fyrir krón­una. Það er mín skoðun að í því alþjóð­aum­hverfi sem við erum í dag þá sé tími sjálf­stæðs gjald­mið­ils lið­inn og ef við horf­umst ekki í augu við þá stað­reynd mun það valda okkur ómældum skaða. Við þurfum að takast á við ýmis stór verk­efni, eins og að reka sam­fé­lag­ið, við­halda kaup­mætti launa­fólks og auka fjöl­breytni atvinnu­lífs­ins og það er ljóst að það verður ekki gert með krón­una sem gjald­mið­il. Það er full reynt. Ef við förum ekki að við­ur­kenna það þá blasir ekk­ert við nema stöðn­un, ein­angrun og rýrnun lífs­kjara. 

Kjósum betri lífs­kjör

Það er sam­fær­ing mín að fyrir launa­fólk og almenn­ing yrði það mik­ill kjara­bót að tengja krón­una við evru. Það myndi ekki aðeins bæta lífs­kjör allra heldur skapa fyr­ir­sjá­an­leika og stöð­ug­leika sem við þráum að fá í fjár­mál okk­ar. Það er nefni­lega þannig að rekstr­ar­um­hverfi heim­ila og fyr­ir­tækja hald­ast í hendur og þau hafa sömu hags­muni af breyt­ing­unni. Allir munu græða á henni.

Auglýsing
Eins eigum við að ljúka aðild­ar­við­ræð­unum við Evr­ópu­sam­bandið og fá að kjósa um þann samn­ing. Ekki gleyma því að það er okkar val að segja já eða nei við hon­um. Við fáum þá loks­ins að sjá hvað er rétt eða rangt varð­andi það sem hefur verið full­yrt í umræð­unni um aðild að sam­band­inu.

Sköpum nýja fram­tíð

Það er löngu orðið tíma­bært að við förum að hugsa til fram­tíðar og finna leiðir sem geta aukið sam­keppn­is­hæfni og fjöl­breytni atvinnu­lífs­ins og um leið aukið kaup­mátt launa með lægri vöxt­um, lækkun mat­væla, losað okkur við fákeppn­ina  auk margra ann­arra þátta sem hafa áhrif á lífs­kjör okk­ar. 

Þá verður miklu létt­ara fyrir okkur að vinna okkur út úr vanda­mál­unum sam­fé­lags­ins, ekki vantar verk­efnin sem þarf að leysa en til þess þarf aukið fjár­magn í aðþrengdan rík­is­sjóð og fjár­vana sveit­ar­fé­lög.

Viljum við ekki nýja fram­tíð­ar­sýn þar sem við sem sam­fé­lag stöndum jafn­fætis eða jafn­vel framar öðrum þjóðum með sam­keppn­is­hæft fjöl­breytt atvinnu­líf, betri lífs­kjör, gott heil­brigð­is­kerfi fyrir alla og til fyr­ir­myndar í umhverf­is­mál­um?

Við hjá Við­reisn erum með skýra stefnu inn í fram­tíð­ina og um leið lausnir sem virka og munu auka hag­sæld allra.

Tökum skrefið inn í nýja fram­tíð og kjósum Við­reisn. 

Höf­undur skipar fjórða sæti Við­reisnar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki