Villuráf: Ásgeiri Daníelssyni svarað

Ragnar Árnason, prófessor emeritus í hagfræði, svarar grein Ásgeirs Daníelssonar hagfræðings og segir söguskýringu hans um upphaf kvótakerfis í botnfiskveiðum fjarri sanni.

Auglýsing

Athygli mín hefur verið vakin á því að Ásgeir Dan­í­els­son telur vera villur í skýrslu Daða Más Krist­ó­fers­sonar um fyrn­ingar afla­hlut­deilda sem hann rit­aði árið 2010. Daði er auð­vitað full­fær um að svara fyrir sína skýrslu, en þar sem Ásgeir reynir að setja grein­ar­gerð sem ég tók nýlega saman undir sama hatt tel ég rétt að leið­rétta stærstu missagnir hans.

­Sögu­skýr­ing Ásgeirs um upp­haf kvóta­kerfis í botn­fisk­veiðum árið 1984 er fjarri sanni. Í fyrsta lagi höfðu stjórn­völd ekki for­göngu um upp­töku þess. Í öðru lagi þurfti ekki að lofa útgerða­mönnum að kerfið væri til skamms tíma. Þeir höfðu þegar góða reynslu af hlið­stæðum kvóta­kerfum í síld­veið­unum (frá 1975) og loðnu­veiðum (1982) og mik­ill meiri­hluti þeirra aðhyllt­ist því slíkt kerfi í botn­fisk­veið­un­um. Í þriðja lagi var afkoma sjáv­ar­út­vegs­ins árið 1984 miklu betri en árin 1982 og 1983. Þessar sögu­legu stað­reyndir eru hins vegar auka­at­riði í gagn­rýni Ásgeirs og óþarfi að fara fleirum orðum um þær.

Villa sú (ekki villur í fleir­tölu) sem Ásgeir þyk­ist hafa séð í skýrslu Daða Más og minni er að verð­mæti afla­hlut­deilda sé aðeins að hluta fært í efna­hags­reikn­ing sjáv­ar­út­vegs­ins og hrein eign hans sé því að sama skapi hærri. Þetta er hins vegar engin villa, því að í báðum skýrsl­unum er skýrt tekið fram að miðað sé við bók­fært eigið fé útvegs­ins en ekki það sem það kann raun­veru­lega að vera.

Auglýsing

Í mál­flutn­ingi sínum leiðir Ásgeir hins vegar les­endur afvega (eða gerir villu svo notað sé orða­lag hans) með öðrum og alvar­legri hætti. Hann gleymir því að eigna­skerð­ing sú sem í fyrn­ingu afla­heim­ilda felst á sér ekki aðeins stað í upp­hafi þegar mark­aðsvirði þeirra fellur í sam­ræmi við fyrn­ing­ar­hlut­fall­ið. Eigna­skerð­ingin heldur áfram með fyrn­ingu hvers árs þar til ekk­ert er eft­ir. Sama gildir um hagnað fyr­ir­tækj­anna. Hann dvínar eftir því sem á fyrn­ing­una líður uns ekk­ert er eft­ir. Það skiptir því litlu þótt raun­veru­legt eigið fé fyr­ir­tækj­anna sé í upp­hafi eitt­hvað hærra en bók­fært virði. Sé eigið fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna ekki umfram mark­aðsvirði afla­hlut­deild­anna mun fyrn­ing þeirra þurrka þetta eigið fé út. Eina spurn­ingin er hvort það ger­ist þegar í upp­hafi eða ein­hverjum árum síð­ar. Það er því vill­andi, svo ekki sé meira sagt, að halda því fram, eins og Ásgeir gerir í tölu­legu dæmi sínu, að til­tekin fyrn­ing muni skilja eftir tals­vert eigið fé hjá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­un­um.

Höf­undur er pró­fessor emeritus í hag­fræði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar