Tíu staðreyndir um íslenskan vinnumarkað

Mikill uppgangur er nú í íslensku efnahagslífi. Þetta sést á tölum sem Hagstofa Íslands tekur saman um íslenskan vinnumarkað.

verkamenn.jpg
Auglýsing

1.       Fjöldi ein­stak­linga á vinnu­mark­aði sam­kvæmt Hag­stofu Íslands, það er frá sextán til 74 ára, er 236 þús­und ein­stak­ling­ar. Heildar­í­bú­i ­fjöldi á Íslandi er nú um 333 þús­und. Því eru um 103 þús­und ein­stak­lingar utan­ þessa ald­urs­bils sem skil­greinir vinnu­mark­að­inn. Til sam­an­burðar má nefna að vinnu­mark­að­ur­inn á Oslóar svæð­inu í Nor­egi, þar sem um 1,5 milljón ein­stak­linga býr, er um 660 þús­und manns.

2.       Atvinnu­þátt­taka er 82,3 pró­sent sem þýðir að 194.200 ­manns eru á vinnu­mark­aði, en utan vinnu­mark­aðar á fyrr­nefndu ald­urs­bili eru 41.800 manns, 17.100 karlar og 24.700 kon­ur.

3.       Af þessum 194.200 ein­stak­lingum sem telj­ast ver­a vinnu­afl þjóð­ar­inn­ar, þá eru 5.900 án atvinnu, en starf­andi eru 188.300. Atvinnu­leysi er nú 3,1 pró­sent, en því er spáð að það muni fara enn neðar í sum­ar, á há­anna­tíma í ferða­þjón­ust­unni.

Auglýsing

Yfirlit yfir þróun atvinnuleysis eftir mánuðum.

4.       Atvinnu­leysi er meira meðal karla en kvenna. Nú eru 3.800 karlar án atvinnu en 2.100 kon­ur. Atvinnu­leysi hjá körlum er því 3,8 ­pró­sent en 2,3 pró­sent hjá kon­um.

5.       Ein­stak­lingum á vinnu­mark­aði fjölg­aði um 7.300 í fyrra. Atvinnu­lausum fækk­aði um 2.500 manns.

6.       Greini­legt er að tölu­verður upp­gangur er nú í at­vinnu­líf­inu, og má sjá merki um það í tölum Hag­stofu Íslands. Þannig fjölg­að­i ­starf­andi ein­stak­lingum á vinnu­mark­aði um 5.700 á ein­ungis fimm mán­aða ­tíma­bili, frá sept­em­ber í fyrra til febr­úar á þessu ári. Í sept­em­ber voru þeir 183.800 en á þessu ári voru þeir 189.500.

7.       Á sama tíma­bili, frá sept­em­ber í fyrra til­ ­febr­úar á þessu ári, fækk­aði atvinnu­lausum um 2.100. Þeir voru 8.000 í sept­em­ber, en eru komnir niður í 5.900 nú.

8.       Atvinnu­leysi eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins fór hæst upp undir 9 pró­sent á árinu 2009 og það hélt hátt fram á árið 2010. Frá­ því tíma hefur það minnkað mik­ið, og stefnir í að tölu­verður fjöldi þurfi að koma til Íslands frá útlöndum á hverju ári til að halda í við hag­vöxt og eft­ir­spurn eftir vinnu­afli.

9.       Atvinnu­leysi eftir hrunið var mun meira hjá körlum en kon­um. Skýr­ingin var meðal ann­ars sú, að stórar karla­stétt­ir, þar á meðal iðn­aðn­ar­menn, misstu verk­efni þegar nær algjört frost var á fast­eigna­mark­aði. Atvinnu­leysi var 8,6 pró­sent hjá körlum árið 2009, en á sama ­tíma var það 5,9 pró­sent hjá kon­um.

atvinnuleysi

10.   Atvinnu­leysi hefur sögu­lega verið lítið á und­an­förnum ald­ar­fjórð­ungi, í sam­an­burði við flest önnur ríki. Frá 1991 og fram að árinu 2008 hafði atvinnu­leysi aldrei farið yfir sex pró­sent, og oft­ast ver­ið á bil­inu tvö til fjögur pró­sent. Árið 2007, sem í huga margra er ein­kenn­is­ár ­fyrir efna­hags­bóluna á Íslandi sem sprakk með lát­um, þá mæld­ist atvinnu­leysi 2,3 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None