Seðlabankinn vill lögfesta heimild til að setja þak á veðhlutföll

Mikilvægt er [...] að heimild til að setja þak á veðhlutföll í þjóðhagsvarúðarskyni sé til staðar áður en skuldadrifin hækkun á fasteignaverði hefst, segir Seðlabanki Íslands.

Sigríður Benediktsdóttir
Auglýsing

Fer­metra­verð mið­svæðis í Reykja­vík hefur hækkað um 38 ­pró­sent á tæpum fimm árum, og útlit er fyrir veru­lega hækkun fast­eigna­verðs á næstu miss­er­um. Seðla­banki Íslands telur mik­il­vægt að lögum verði breytt á þann ­veg að skýr heim­ild verði til stað­ar, sem tak­marki mögu­leika á skuld­setn­ing­u ­vegna fast­eigna­kaupa. „Mik­il­vægt er [...] að heim­ild til að setja þak á veð­hlut­föll í þjóð­hags­var­úð­ar­skyni sé til staðar áður en skulda­drifin hækkun á fast­eigna­verði hefst en laga­frum­varp með slíkri heim­ild liggur nú fyr­ir­ Al­þing­i,“ segir í fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­bank­ans, sem kom út 20. apríl síð­ast­lið­inn. Sig­ríður Bene­dikts­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika, er rit­stjóri þess.

Ekki skuldir í þetta skiptið

Sé horft heil yfir fast­eigna­mark­að­inn, það er með­al­tals­töl­ur á öllum mark­aðn­um, þá hækk­aði fast­eigna­verð í fyrra um sjö pró­sent að raun­virði, að því er segir í rit­inu. Íbúð sem var með verð­miða upp á 30 millj­ónir í byrjun árs­ins í fyrra kost­aði 32,1 milljón í lok árs­ins. Sé mið tekið af spám þá verður hún komin í tæp­lega 40 millj­ónir í byrjun árs 2018.

Í rit­inu segir að hækkun fast­eigna­verðs á und­an­förnum árum hafi ekki verið drifin áfram með auk­inni skuld­set­ingu heim­ila, en hætta sé á því að það ferli hefj­ist fyrr en seinna. Ofþensla sé í kort­un­um, og mik­il­vægt að grannt sé fylgst með gangi mála. . 

Auglýsing

Heild­ar­skuldir heim­ila hafa lækkað að und­an­förnu, og er staða þeirra í al­þjóð­legum sam­an­burði nokkuð góð um þessar mund­ir. Skuldir heim­ila lands­ins eru áætl­aðar 177% af ráð­stöf­un­ar­tekjum um síð­ustu ára­mót, eða álíka hlut­fall og um síð­ustu alda­mót, að því er fram kom í frétta­skýr­ingu Guðna Ein­ars­sonar í Morg­un­blað­inu á dög­un­um.

Til­ ­sam­an­burðar var þetta hlut­fall í árs­lok 2014 305% í Dan­mörku, 274% í Holland­i, 174% í Sví­þjóð, 225% í Nor­egi og 127% í Finn­landi, að því er fram kom í fyrr­nefndri frétta­skýr­ingu.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri. Mynd: Birgir.Á brems­unni

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, sagði á opnum fund­i efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþing­is, að nauð­syn­legt væri að vera á hag­stjórn­ar­brems­unn­i, þar sem helsta hættan sem steðj­aði að hag­kerf­inu væri ofþensla. Þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins, einkum Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar, og Þor­steinn Sæmunds­son, spurðu Má ítar­lega út í vaxta­á­kvarð­anir bank­ans, og gagn­rýndu þær. Sögðu verð­bólgu­spár engan veg­inn hafa gengið eft­ir, og stýri­vextir væru alltof háir fyrir vik­ið. Sagði Frost­i ­meðal ann­ars að aðeins skuld­arar væru látnir bera hit­ann og þung­ann af þessum ­vaxta­hækk­un­um, og meðan þeir sem ættu pen­inga í lausu inn á banka­reikn­ing­um ­myndu hagn­ast á þessu háa vaxta­tæki.

Már hafn­aði því, að vextir væru óeðli­lega háir og sagð­i ­nauð­syn­legt að horfa ekki aðeins til verð­bólgu­spár, heldur einnig til ann­arra þátta. Margt benti til þess að mikil ofþensla gæti haft nei­kvæð áhrif, ef hag­stjórn­ar­tækj­u­m yrði ekki beitt með skyn­sömum hætti. Á þetta hefði Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn ­meðal ann­ars bent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None