Fyrsta „alvöru árás“ Hillary á Trump

Í ræðu sem Hillary Clinton hélt í San Diego 2. júní, gagnrýndi hún Donald J. Trump harðlega fyrir yfirborðsmennsku og hættulegan málflutning.

Hillary Clinton
Auglýsing

Hill­ary Clinton hefur átt í vök að verj­ast að und­an­förnu, í sinn­i ­kosn­inga­bar­áttu innan Demókra­ta­flokks­ins um útnefn­ingu fyr­ir­ ­for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum í nóv­em­ber. Hún er sig­ur­strang­leg­ust en Bernie Sand­ers neitar að gef­ast upp, og rekur kröft­uga bar­áttu um öll rík­in. Þó mun meiri líkur séu á því að Hill­ary vinni, þá er ekki útséð með það.

Hill­ary hefur verið gagn­rýnd fyrir lin­kind gagn­vart Don­ald J. Trump, sem verður að öllum lík­indum fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins, þrátt ­fyrir væg­ast sagt umdeildar yfir­lýs­ingar og stefnu­mál. Sér­stak­lega er það krist­al­tær kyn­þátta­hyggja og menn­ing­ar- og trú­arað­skil­ar­stefna sem vald­ið ­miklum deil­um, og leitt til pólaríser­andi við­bragða hjá almenn­ingi. Hann er ým­ist hat­aður eða elsk­að­ur, en fylgið hefur farið hækk­and­i und­an­farin miss­eri.

Auglýsing


Vina­sam­band

Hill­ary hefur fengið að heyra það nokkuð oft, meðal ann­ars í rit­stjórn­ar­skrifum dag­blaða hér vestra, að hún geti ekki tek­ist á við Trump ­vegna þess að þau séu vinir frá gam­alli tíð. Trump hefur verið tíður gestur í sam­kvæmum þar sem Clint­on-hjónin hafa ver­ið, einkum í New York. Hill­ary hef­ur þó sagt, að þó þau þekkist, og hafi um tíma verið í góðu sam­bandi, þá sé hún­ fjarri Trump í stjórn­mál­un­um.

Fyrsta póli­tíska árásin á Trump, eins og það var kallað í end­ur­sögn The Economist, kom í ræðu sem Hill­ary hélt 2. júní síð­ast­lið­inn í San Di­ego. Meg­in­efnið var utan­rík­is­stefna Banda­ríkj­anna og þjóðar­ör­yggi, og út frá henni sagði hún­ að Trump væri „ein­fald­lega ekki hæf­ur“ til að gegna starfi Banda­ríkja­for­seta. Hún­ ­sagði meðal ann­ars, að Trump hefði vissu­lega reynslu af utan­rík­is­stefnu, enda hefði hann staðið fyrir feg­urð­ar­sam­keppnum í Rúss­landi. Vitn­aði hún þar til­ orða sem Trump lét falla í við­tali við Fox News, þar sem hann sagð­ist þekkja Rúss­land vel, eftir að hafa haldið þar Ung­frú Heim (Miss Uni­ver­se) feg­urð­ar­sam­keppn­ina, og sagt það hafa verið „risa­vax­inn“ við­burð.

Fleiri ættu að búa yfir kjarn­orku­vopnum

Hill­ary hélt áfram, og var ekki skemmt þegar hún þræddi sig í gegnum þau atriði sem Trump hefur talað fyr­ir. „Þetta er maður sem hef­ur ­talað fyrir því að fleiri ættu að búa yfir kjarn­orku­vopn­um, þar á með­al­ Sá­dí-­Ar­ab­í­a,“ sagði Hill­ary. Trump hefur sagt, að ýmsar stór­þjóðir heims­ins ­gætu þurft að end­ur­skoða stefnu sína, þegar kemur að kjarn­orku­vopn­um. Fleiri ­þyrftu að víg­búast, og vera „til­búin fyrir átök“. Hill­ary tal­aði beint til­ þeirra sem voru í saln­um, og sagði meðal ann­ars: „Mynduð þið vilja hafa f­ing­ur­inn hans ein­hvers staðar nærri takk­an­um?“.  Sal­ur­inn svar­aði á móti með því að kalla hátt og end­ur­tekið nei. Eng­inn virt­ist vilja hafa Trump nærri takk­anum sem ræs­ir kjarn­orku­sprengj­una.



Víg­línan skerp­ist

Hill­ary eyddi einnig drjúgum hluta í ræðu sinni í að ­gagn­rýna Trump fyrir að styðja við umdeilda þjóð­ar­leið­toga eins og Vladím­ir Pútín Rúss­lands­for­seta. Þá sagði hún að stuðn­ingur sem Trump hefði fengið frá­ ­stjórn­völdum í Norð­ur­-Kóreu væri ekki beint til þess fall­inn að vekja traust eða til­trú á hans mál­flutn­ingi. Helstu dag­blöð í Norð­ur­-Kóreu, sem stjórn­völd ­stýra, hafa hrósað Trump í hástert og sagt hann „vitran“ og „skyn­sam­an“ ­leið­toga.

Hill­ary sendi út skýr skila­boð í ræðu sinni. Hún sagði Trump al­gjör­lega „óhæf­an“ um að móta og stýra utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna. Þar með­ væri hann ekki hæfur til að verða for­seti. Í raun væri þetta nóg til að ger­a hann óhæfan í starfi, en „miklu, miklu fleira“ mætti þó telja til, eins og Hill­ary komst sjálf að orð­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None