Nánast enginn þeirra aflandskrónueigenda sem tóku ekki þátt í útboði Seðlabanka Íslands þann 16. júní ákváðu að taka þátt í framhaldsútboði þar sem bankinn bauðst til að kaupa krónur þeirra fyrir 190 krónur á hverja evru. Fjárhæð samþykktra tilboða í báðum útboðunum var 83 milljarðar króna og hækkaði einungis um fimm milljarða króna milli útboða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Seðlabanka Íslands sem birt var rétt í þessu. Alls voru 188 milljarðar króna boðnir í útboðinu en heildarumfang aflandskrónuvandans var fyrir það um 319 milljarðar króna.
Ljóst er að stærstu eigendur aflandskróna, nokkrir bandarískir sjóðir, ætla sér ekki að taka þátt í þeim leiðum sem Seðlabankinn hefur boðið þeim út úr íslenskum höftum. Þeir ætla heldur ekki að sætta sig við að eignir þeirra verði settar inn á nær vaxtalausa reikninga í refsingarskyni fyrir að taka ekki þátt í útboðunum á því gengi sem Seðlabankinn hefur boðið þeim. Þess í stað hafa sjóðirnir falið lögmanni sínum að kanna grundvöll fyrir mögulegri málshöfðun á hendur íslenska ríkinu auk þess sem þeir hafa kvartað til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna lagasetningar sem samþykkt voru aðfaranótt 23. maí síðastliðins, og þeir telja að feli í sér eignarupptöku og brot á jafnræðisreglu.
Stórt skref í átt að losun hafta
Í tilkynningu frá Seðlabankanum vegna niðurstöðu útboðsins segir að útboðið hafi verið liður í áætlun ríkisstjórnar Íslands og bankans um losun fjármagnshafta og stefnt sé að því að áætlun um losun fjármagnshafta á innlenda aðila liggi fyrir síðla sumars og að frumvörp sem lúta að næstu skrefum verði lögð fram á þingi þegar það kemur saman í ágúst. „Í framhaldinu verður skoðað hvenær og með hvaða hætti losað verður um höft á aflandskrónueigendur sem kusu að taka ekki þátt í útboðinu. Ljóst er að þátttakan í útboðinu mun einfalda það ferli verulega. Eftir standa færri og einsleitari aðilar en áður og útistandandi fjárhæð hefur lækkað verulega.“
Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að með útboðinu og nýlegum lagabreytingum sé síðustu stóru hindruninni rutt úr vegi þess að hægt verði að stíga stór skref til að losa um fjármagnshöft gagnvart innlendum aðilum án hættu á óstöðugleika. „Aflandskrónahengjan hefur minnkað úr rúmlega þriðjungi af landsframleiðslu árið 2009 í u.þ.b. 11% af landsframleiðslu að útboði loknu. Þótt ekki hafi verið unnt að taka tilboðum í aflandskrónaeignir að andvirði 105 milljarða króna auðveldar það lausn þess vanda sem eftir stendur að eigendum krafna hefur fækkað mjög. Þá hefur verið búið svo um hnútana að aflandskrónur sem eftir standa valdi ekki óstöðugleika á meðan losun fjármagnhafta á innlenda aðila gengur yfir. Smitunaráhrif ættu því að vera hverfandi og hætta á óstöðugleika lítil.“
Óhlýðnir áttu að lenda aftast í röðinni
Frumvarp Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum, einnig nefnt aflandskrónufrumvarpið, var samþykkt á Alþingi sunnudaginn 22. maí. Það var lagt fram eftir lokun markaða á föstudag og höfuðáhersla lögð á að frumvarpið yrði að lögum fyrir opnum markaða á mánudag. Þess vegna fékk það mjög hraða meðferð í þinginu og forseti Íslands skrifaði undir þau aðfaranótt mánudagsins 23. maí.
Í einföldu máli snúast lögin um að eigendur „aflandskróna“ myndu fá tvo kosti. Annar fólst í því að eigendurnir samþykki að selja krónurnar sínar á genginu 190-220 krónur á hverja evru í útboði sem fór fram 16. júní síðastliðinn. Þeir sem myndu ekki samþykkja að taka þátt í þessu útboði myndi bjóðast að fjárfesta í sérstökum innstæðubréfum útgefnum af Seðlabanka Íslands sem bera 0,5 prósent vexti en vextir á þeim eru endurskoðaðir árlega.
Ósamvinnuþýðir aflandskrónueigendur, sem myndu neita að taka þátt í aflandskrónuútboðinu, áttu reyndar fá annað tækifæri til að koma sér út úr íslensku hagkerfi á enn verri kjörum frá 1. september til 1. nóvember 2016. Þar verður viðmiðunargengið 220 krónur. Stjórnvöld sögðu að fari þeir ekki út með peninganna sína þá sé alls óljóst hvenær þeir hafi aftur aðgang að eignum sínum. Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði við Morgunblaðið í lok maí að þeir myndu lenda aftast í röðinni við losun hafta.
Það vakti umtalsverða athygli að þegar niðurstöður útboðsins sem fram fór 16. júní voru kynntar þá kom í ljós að stærstu eigendur aflandskróna höfðu ekki tekið þátt í þeim. Í framhaldinu ákvað Seðlabankinn að leggja í framhaldsútboð þar sem boðist var til að kaupa allar aflandskrónueignir sem seldust ekki á 190 krónur á hverja evru. Nú liggur fyrir að fáir eftirstandandi eigendur þeirra höfðu áhuga á að taka þátt.
Telja engar neyðaraðstæður vera uppi í íslensku hagkerfi
Nálægt 85 prósent svokallaðra aflandsskróna eru í eigu bandarískra eignastýringafyrirtækja, sem stýra meðal annars vogunarsjóðum. Pétur Örn Sverrisson hæstaréttarlögmaður og Magnús Árni Skúlason hagfræðingur unnu umsögn um frumvarp stjórnvalda um losun fjármagnshafta fyrir hönd tveggja sjóða, Eaton Vance Corp. og Autonomy Capital LP.
Í einföldu máli telja sjóðirnir að aðgerðir stjórnvalda gangi gegn stjórnarskrárvörðum eignarétti sjóðanna með „bótaskyldum“ hætti.
Sérstaklega var áhersla lögð á það að engar neyðaraðstæður séu uppi í hagkerfinu þessi misserin sem réttlæti eignaupptöku af sjóðunum. Staða efnahagsmála sé góð og óskuldsettur gjaldeyrisforði Seðlabankans hafi fyrir útboð numið um 400 milljörðum króna, eða sem nemur um 20 prósent af landsframleiðslu. Kvik krónueign sé minni en sem þessu nemur og því ógni hröð útganga ekki hagkerfinu.
Aflandskrónueigendurnir telja að eignaskerðingin sem frumvarpið feli í sér geti á engan hátt talist í samræmi við jafnræðis- og eignarréttarákvæði stjórnarskráarinnar. Í 72. grein stjórnarskráar Íslands segir: „Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir“. Þá sé augljóslega sé verið að mismuna þeim á grundvelli þjóðernis og búsetu, sem sé líka í andstöðu við skuldbindingar Íslands á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES).
Þrátt fyrir það telja ráðamenn þjóðarinnar, og Seðlabanki Íslands, að þessi ráðagerð standist eignarréttarákvæði stjórnarskráar Íslands. Davíð Þór Björgvinsson lagaprófessor tekur undir það, samkvæmt umsögn hans sem hann skilaði inn vegna frumvarpsins sem varð að lokum seint í maí.
Á grundvelli þessarra skoðana sinna hafa þeir falið lögmanni sínum að kanna grundvöll fyrir málshöfðun á hendur íslenska ríkinu.
Kjarninn fjallaði ítarlega um þá stöðu sem komin er upp í fréttaskýringu sem birtist í gær.