Black Lives Matter
Auglýsing
  1. Hreyf­ingin Black Lives Matter varð til í kjöl­far morðs­ins á Tra­y­von Mart­in, sem var sautján ára drengur sem var myrtur af nágranna sín­um, George Zimmerman árið 2012. Zimmerman var ekki dæmdur fyrir morð­ið, sem hann sagði hafa verið í sjálfs­vörn. Martin var óvopn­að­ur. Stofn­end­unum þótti sem Martin hefði verið sak­aður um glæpi eftir dauða sinn, í rétt­ar­höld­unum yfir Zimmerm­an.
  2. Hreyf­ingin var stofnuð árið 2013, eftir að Zimmerman var sýkn­að­ur, af þremur ungum kon­um, Aliciu Garza, Pat­risse Cull­ors og Opal Tometi. Alicia Garza skrif­aði skila­boð á Face­book-­síðu sína í kjöl­far sýknu­dóms­ins þar sem hún sagði m.a. Black Lives Matt­er. Vin­kona henn­ar, Pat­risse Cull­ors, svar­aði póst­inum og gerði myllu­merkið #BlackLi­vesMatt­er. Stuttu síðar fengu þær Opal Tometi til liðs við sig og hreyf­ingin varð til. 
  3. Hreyf­ingin fékk meiri byr í seglin eftir að Mich­ael Brown, annar óvopn­aður ung­ling­ur, var myrtur af lög­reglu­manni í Fergu­son, Mis­so­uri árið 2014. Lög­reglu­mað­ur­inn Dar­ren Wil­son skaut Brown til bana, en Wil­son er hvít­ur. Í kjöl­farið urðu mikil mót­mæli og óeirðir í Fergu­son og svo um öll Banda­rík­in. Black Lives Matter hvatti fólk til að keyra til Fergu­son og hreyf­ingin var þátt­tak­andi í mót­mæl­un­um. 
  4. Hreyf­ingin hefur mót­mælt fjölda­mörgum morðum lög­reglu­manna á svörtu fólki, aðal­lega svörtum ungum körlum, síðan þá. Það er þó ekki eina áherslu­at­riðið hjá hreyf­ing­unni, langt því frá. 
  5. Stofn­endur hreyf­ing­ar­innar segja að með því að nota Black Lives Matter (í. líf svartra skipta máli) sé umræðan um ofbeldi stjórn­valda víkkuð út þannig að hún nái yfir allar þær leiðir sem not­aðar séu til að úti­loka svart fólk kerf­is­bundið og svipta það völd­um. „Við erum að tala um það hvernig svartir ein­stak­lingar eru sviptir grund­vall­ar­mann­rétt­indum og reisn.“ Hreyf­ingin sé hug­mynda­fræði­legt og póli­tískt inn­grip í heimi þar sem kerf­is­bundið sé brotið gegn svörtu fólki. 
  6. Sam­kyn­hneigt og trans­fólk leikur lyk­il­hlut­verk í hreyf­ing­unni, að sögn stofn­end­anna. Bæði Garza og Cull­ors eru sam­kyn­hneigð­ar, og áhersla hefur alltaf verið lögð á að Black Lives Matter umfaðmi alla. Kon­ur, hinsegin fólk og fatl­aðir ein­stak­lingar hafi verið jað­ar­sett í bar­átt­unni og í Black Lives Matter sé þessu snúið á haus. 
  7. Vel yfir þús­und við­burð­ir, mót­mæli og kröfu­göngur hafa verið haldnar á vegum Black Lives Matt­er. 
  8. Nú eru að minnsta kosti 38 hreyf­ingar starf­ræktar í Banda­ríkj­unum og víð­ar, meðal ann­ars í Bret­landi, Kanada og Gana. 
  9. Stofn­end­urnir þrír voru valdir meðal bestu leið­toga heims­ins í Fortune fyrr á þessu ári. Black Lives Matter hafi nefni­lega tek­ist að vaxa sífellt, öfugt við margar hreyf­ingar sem verða til í gegnum sam­fé­lags­miðla. Þær voru líka á Polit­ico 50 list­anum yfir þá sem helst eru að breyta banda­rískum stjórn­mál­um.
  10. Hreyf­ingin hefur í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum opin­ber­lega skorað á fram­bjóð­endur að lýsa opin­ber­lega afstöðu sinni gagn­vart bar­áttu­málum BLM. Demókra­ta­flokk­ur­inn hefur form­lega lýst yfir stuðn­ingi við hreyf­ing­una. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None