Allt að 75% munu áfram geta tekið Íslandslán

Stóra skref ríkisstjórnarinnar í átt að afnámi verðtryggingarinnar felur í sér að allt að 75% lántakenda munu áfram geta tekið 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán, svokölluð Íslandslán.

7DM_4368_raw_1638.JPG
Auglýsing

40 til 75 pró­sent allra lán­tak­enda munu áfram geta tekið 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán, svokölluð Íslands­lán, þó að frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um verð­trygg­ing­una verði að lög­um. Þetta er vegna und­an­tekn­inga sem settar eru fram í laga­frum­varp­inu, sem búið er að leggja fram á Alþing­i. 

Sam­kvæmt frum­varp­inu verður óheim­ilt að veita neyt­enda­lán til lengri tíma en 25 ára sé það verð­tryggt og með jafn­greiðslu­fyr­ir­komu­lagi. Þó eru gerðar und­an­tekn­ingar um þessa „al­mennu reglu“ eins og Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra kall­aði breyt­ing­una á blaða­manna­fundi hans og Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra í gær. Búið var að boða að frum­varp yrði lagt fram í þess­­ari viku þar sem dregið yrði veru­­lega úr vægi verð­­trygg­ing­­ar. Í kynn­ing­unni í Hörpu var því haldið fram að um væri að ræða fyrsta alvar­­lega skrefið sem stigið væri í þá átt frá því að verð­­trygg­ing hafi verið sett á árið 1979. Það er hins vegar erfitt að halda því fram að þetta frum­varp muni draga veru­lega úr vægi verð­trygg­ing­ar, ef allt að 75 pró­sent munu enn geta tekið sömu lán­in. 

Meiri­hlut­inn getur fallið undir und­an­tekn­ingu

Und­an­tekn­ing­arnar sem settar eru fram í frum­varp­inu eru þannig að ef lán­tak­endur eru yngri en 35 ára mega þeir áfram taka allt að 40 ára lán. Ef þeir eru 35-39 ára mega þeir taka allt að 35 ára lán, og ef lán­tak­endur eru 40-44 ára mega þeir taka allt að 30 ára lán. Ef fleiri en einn lán­tak­andi er að lán­inu þarf alla­vega einn þeirra að upp­fylla þessi skil­yrð­i. 

Auglýsing

Þá má fólk áfram taka 40 ára jafn­greiðslu­lánin ef skatt­skyldar tekjur þess nema 3,5 millj­ónum króna eða minna hjá ein­stak­lingi eða sam­an­lagt sex millj­ónum króna þegar lán­tak­endur eru fleiri. Og að lokum má fólk sem er með 50% eða lægra veð­setn­ing­ar­hlut­fall áfram fá að taka 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán. 

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að 70 millj­arðar af þeim 90 millj­örðum króna sem sem Íslend­ingar tóku í fyrra í verð­tryggðum hús­næð­is­lánum eru jafn­greiðslu­lán til 40 ára, lánin sem nú stendur til að banna sumum að taka. 

„Með hlið­sjón af fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum um aldur lán­taka við töku íbúða­lána, veð­setn­ing­ar­hlut­fall og tekjur má gera ráð ­fyrir að um 30–50% lán­tak­enda falli undir und­an­þágu frum­varps­ins um ald­ur, 5–10% vegna ­tekna og 5–15% vegna veð­setn­ing­ar.“ Sem sagt, allt frá 40 til 75 pró­sent lán­tak­enda munu ekki falla undir „al­mennu regl­una“ um að lán verði ekki veitt nema til 25 ára. 

„Miðað við lán­veit­ingar á árinu 2015 má gera ráð fyrir að um 20–30 millj­arðar kr. af nýjum veittum lánum hefðu á því ári fallið undir ákvæð­i frum­varps­ins eða um 1.000 til 1.500 manns,“ segir jafn­framt í grein­ar­gerð­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiInnlent
None